Föstudagskvöldið 28. apríl verður fjáröflunarmálsverður í Friðarhúsi þar sem Björk Vilhelmsdóttir borgarfulltrúi sér um eldamennsku. Borðhald hefst kl. 19 og kostar maturinn litlar 1.000 krónur.
Á matseðlinum eru suðræn fiskisúpa a la Björk & vistvæn brauð frá Brauðhúsinu.
Baldvin Halldórsson leikari les ljóð.
* * *
Að morgni mánudagsins 1. maí verður að venju morgunkaffi SHA. Það hefst kl. 11 í Friðarhúsi. Ómissandi upphitun fyrir kröfugönguna!
Að kvöldi 1. maí verður opið í Friðarhúsi, þar sem gestir og gangandi geta rekið inn nefið og spjallað yfir kaffibolla.