Aldrei aftur Hírósíma: Trönugerð friðarsinnans

By 16/08/2015 Uncategorized

Friðarhús verður opið á Menningarnótt Reykjavíkur þann 22. ágúst n.k. frá kl. 13 til 16.

Sögu- og myndasýning um kjarnorkuárásirnar á Hírósíma og Nagasakí árið 1945 stendur uppi í Friðarhúsi. Boðið verður upp á kennslu og leiðbeiningar um hvernig gera skuli origami- trönur, en japanskir friðarsinnar hafa lengi tíðkað að útbúa þennan fugl friðarins til að tjá andúð sína á hernaði og vígvæðingu. Kaffihús á staðnum.