Fyrsti fjáröflunarmálsverður haustmisseris verður haldinn í Friðarhúsi, Njálsgötu 87, föstudagskvöldið 26. september. Jón Bjarni, Gísli Hrafn og Friðrik Atlasynir sjá um matseld:
- Kjötsúpa hernaðarandstæðingsins þrungin ævintýrum sumarsins og rótargrænmeti úr matjurtagarðinum.
- Karrýgrænmetisgrýta með friðarívafi.
- Heimabakað brauð hnoðað af auðmýkt en um leið styrk baráttunnar gegn hernaðarbrölti NATO.
- Ljúfmalað kaffi og heimagerðir friðarsúkkulaðimolar.
Guðrún Lára Pálmadóttir mætir með gítarinn og tekur lagið að málsverði loknum. Borðhald hefst kl. 19. Verð kr. 2.000.