Sameiginlegur félagsfundur MFÍK og Samtaka hernaðarandstæðinga verður haldinn í Friðarhúsi, Njálsgötu 87, miðvikudagskvöldið 13. nóvember kl. 20.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir fréttamaður og fyrrum ritstjóri Smugunnar talar um njósnir og uppljóstranir: Uppljóstranir Edward Snowden og Chelsea Manning ? Hverju breyta þær? Hversu mikilvægir eru uppljóstrarar lýðræðinu og hvernig er komið fram við þá?
Á undan mun MFÍK bjóða upp á málsverð sem hefst kl. 19. Matseðill: Pottréttur Auðar og grænmetispottréttur Leu, brauð og salat, kaffi og súkkulaðimolar. – Verð kr. 1.500
Allir velkomnir.