Fjáröflunarmálsverður Friðarhúss í október verður haldinn föstudagskvöldið 25. október. Matseldin verður að þessu sinni í hópi nokkurra yngri félagsmanna.
Matseðill:
- Lasagne
- Grænmetislasagne
- Ferskt salat & hvítlauksbrauð
- Eftirréttur: Eplahraun að hætti hraunavina
Að borðhaldi loknu mun Jón Ögmundur Þormóðsson lögfræðingur kynna stórmerkilega bók sína sem hefur að geyma yfirgripsmikið safn tilvitnana um friðarmál. Peace and War: Niagara of Quotations (Friður og stríð: Hafsjór af tilvitnunum).
Borðhald hefst kl. 19. Allir velkomnir. Athugið nýtt verð: 2.000 kr.