Samtök hernaðarandstæðinga standa í stórræðum um þessa helgi.
Föstudagskvöldið 30. nóvember verður fáröflunarmálsverðurinn mánaðarlegi. Glæsilegt jólahlaðborð í Friðarhúsi. Guðrún Bóasdóttir (Systa) sér um matseldina.
Matseðill:
• Heimalöguð sænsk jólaskinka með kartöflusalati, gulrótarappelsínusalati og sinnepssósu
• Heimagerð lifrakæfa og heimabakað rúgbrauð
• Reykt nautatunga með piparrótarrjóma
• Karrýsíld
• Tómatsalsasíld
• Hnetusteik í boði f. grænmetisætur
• Kaffi og smákökur
Verð kr. 2.000. Borðhald hefst kl. 19.
Að snæðingi loknum lesa Auður Jónsdóttir og Úlfar Þormóðsson úr nýútkomnum bókum sínum og félagar úr Spöðum taka lagið.
* * *
Sunnudaginn 2. desember verður landsfundur SHA haldinn í Friðarhúsi. Dagskrá hefst kl. 11 með venjubundnum aðalfundarstörfum. Einfaldur hádegisverður í boði.
Síðdegis verður rætt um stöðu friðar- og afvopnunarmála á vettvangi Alþingis, þar á meðal störf nefndar um mótun öryggismálastefnu. Árni Þór Sigurðsson úr utanríkismálanefnd gerir grein fyrir stöðu mála.
Fundarlok áætluð um kl. 16.