Hinir sívinsælu málsverðir Friðarhúss hefjast að nýju föstudaginn 28. september.
Haustgrænmetið verður í fyrirrúmi á fyrsta matseðlinum, en Guðrún Bóasdóttir sér um eldamennskuna.
* Matarmikil kjötsúpa
* Grænmetisgratín (bakað grænmeti í ofni)
* Borið fram með kartöflubrauði, smjöri og heimagerðu hvítlauksmajónesi
Borðhald hefst á slaginu 19:00. Verð kr. 1.500. Allir velkomnir.