Þann tuttugasta mars nk. verða þrjú ár liðin frá því að innrás Bandaríkjamanna og bandalagsríkja þeirra hófst í Írak. Þrátt fyrir ítrekaðar yfirlýsingar ráðamanna á Vesturlöndum um að hylli undir lok hernaðarins í landinu, er fátt sem bendir til að sú sé raunin. Þvert á móti berast daglega fregnir af mannskæðum árásum og áframhald þeirrar mannskæðu borgarastyrjaldar sem gagnrýnendur innrásarinnar spáðu fyrir um í upphafi.
Á ársafmæli stríðsins efndu friðarhreyfingar víða um lönd til aðgerða þar sem þess var krafist að látið yrði af hernaðinum og að hernámsliðið færi brott. Ári síðar endurtóku þær leikinn, en í bæði skiptin var gríðarleg þátttaka í hinum alþjóðlegu mótmælum. Ákveðið hefur verið að dagana 18.-20. mars verði mótmæli af þessu tagi og rignir nú inn fréttum af borgum og bæjum víða um heim þar sem andstæðingar stríðsins láta ljós sitt skína.
Hér á landi voru haldnar eftirminnilegar aðgerðir í tengslum við mótmæli þessi bæði í fyrra og hitteðfyrra. 2004 voru Óskapa-verðlaunin afhent á tröppum Stjórnarráðsins, þar sem veittar voru viðurkenningar í flokkum á borð við “aumasti lygarinn” og “ósvífnasti stríðsgróðapungurinn”. Aðgerðirnar 2005 voru öllu alvörugefnari, en þar voru nöfn fjölda fórnarlamba stríðsins næld í stóran, svartan segldúk og hann borinn um miðbæinn. Báðar aðgerðirnar voru afar fjölmennar.
Miðvikudagskvöldið 18. janúar verður fyrsti formlegi undirbúningsfundur aðgerðanna í mars haldinn í Friðarhúsi á horni Snorrabrautar og Njálsgötu. Þar munu verður velt upp hugmyndum varðandi það með hvaða hætti unnt sé að mótmæla stríðinu þannig að eftir verði tekið. Allir velkomnir.