8. mars, fimmtudagur.
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti. Baráttufundur í Ráðhúsi Reykjavíkur kl. 17.
19. mars, mánudagur. Baráttufundur gegn stríðinu í Írak í Austurbæ kl. 20. Ýmiskonar aðgerðir gegn stríðrekstri og hernámi Bandaríkjanna og bandamanna þeirra í Írak verða víða um heim helgina 17-18 mars og dagana á eftir, en innrásin í Írak hófst aðfararnótt 20. mars 2003.
Í Bandaríkjunum hafa stærstu friðarhreyfingarnar, United for Peace and Justice og A.N.S.W.E.R. skipulagt aðgerðir. UPJ stendur fyrir aðgerðum víða um landið en A.N.S.W.E.R. skipuleggur mikla göngu að Pentagon.
Þá er stendur einnig til að virkja bloggara með friðarbloggi, sjá nánar: http://bluepyramid.org/peace/
Í London var mikil mótmælaganga síðastliðinn sunnudag sem beindist gegn stríðinu í Írak, áformum um innarás í Íran og endurnýjun kjarnorkuvopna í Bretlandi. Þriðjudaginn 20. mars verður síðan á vegum Stop the War Coalition svokallað alþýðuþing í London þar sem Íraksstríðið verður til umræðu.
30. mars munum minnast þess að þá verða 58 ár liðin frá inngöngu Íslands í NATO. Mikilvægi baráttunnar gegn NATO hefur ekkert minnkað þótt bandaríksi herinn sé farinn, þvertá móti, aldrei hefur NATO verið jafnárásargjarnt og óþverralegt stríðsbandalag og nú. Ísland úr NATO!