google
yahoo
bing

Landsráðstefna 5. nóvember 2005

Skýrsla miðnefndar

Á síðustu landsráðstefnu SHA, sem var haldin 6. nóvember 2004, voru eftirtaldir kosnir í miðnefnd:

Aðalmenn: Einar Ólafsson, Kópavogi, Harpa Stefánsdóttir, Reykjavík, Sigurður Flosason, Kópavogi, Sigþrúður Gunnarsdóttir, Reykjavík, Stefán Pálsson , Reykjavík, Torfi Stefán Jónsson, Reykjavík, Unnur María Bergsveinsdóttir, Reykjavík og Haukur Þorgeirsson, Reykjavík.
Varamenn: Angantýr Einarsson, Akureyri, Bergljót Njóla Jakobsdóttir, Reykjavík, Páll Hilmarsson, Reykjavík, Sveinn Birkir Björnsson, Reykjavík.

Á fyrsta fundi sínum skipti miðnefnd svo með sér verkum að Stefán Pálsson varð formaður, Sigurður Flosason gjaldkeri og Einar Ólafsson ritari.

Eitt fyrsta verkefni nýrrar miðnefndar var að bregðast við árásum Bandaríkjamanna á borgina Fallujah í Írak um miðjan nóvember. Gerð voru kort til dreifingar vegna þessarar árásar.

Að venju áttu SHA mikinn þátt í undirbúningi Friðargöngu í Reykjavík á Þorláksmessu. Að þessu sinni flutti Eva Líf Einarsdóttir ávarp en Davíð Þór Jónsson var fundarstjóri. Eins og ætíð áður tók Hamrahlíðarkórinn og Kór Menntaskólans við Hamrahlíð þátt í dagskránni með söng. Einnig stóðu eintaklingar fyrir friðargöngum á Akureyri og Ísafirði. Á Akureyri flutti Embla Eir Oddsdóttir ávarp og kór Akureyrarkirkju söng. Á sjöunda tug friðarsinna tók þátt í friðargöngu á Ísafirði þar sem Halldór Hermannsson flutti ávarp og Lúðrasveit Ísafjarðar spilaði.

Stór Dagfari kom út í byrjun mars. Einnig hafa komið út nokkur tölublöð af litla Dagfara.

SHA stóð fyrir mótmælaaðgerðum 19. mars í tilefni af því að tvö ár voru liðin frá því að innrásin í Írak hófst. Haft var samband við Þjóðarhreyfinguna með lýðræði um samstarf og var tekið vel í það. Einnig höfðu samtökin gott samstarf við MFÍK eins og venjulega. Undirbúningur og framkvæmd hvíldi þó einkum á herðum SHA. Undirbúningsfundir voru haldnir í róttæknimiðstöðinni Snarrót en að morgni sjálfs aðgerðardagsins var safnast saman í MÍR-salnum og útbúnir borðar og spjöld. Gafst það vel. M.a. voru útbúin 730 spjöld með nöfnum fólks sem hafði látið lífið í innrásinni og eftir hana, eitt fyrir hvern dag, og festu fundarmenn þau á svartan borða sem borinn var að stjórnarráðinu. Ávörp fluttu Sveinn Aðalsteinsson og Ugla Egilsdóttir. Um 800 manns tóku þátt í þessum aðgerðum. Mótmælafundur var einnig á Kaffi Karólína á Akureyri þar sem Kristinn H. Gunnarsson þingmaður og Steinunn Rögnvaldsdóttir nemi fluttu ávörp en milli 50 og 60 manns voru á fundinum. Fjölmennar mótmælaaðgerðir voru um allan heim þennan sama dag.

Að venju hittust herstöðvaandstæðingar í morgunkaffi 1. maí, að þessu sinni í Listhúsinu við Engjateig. Var það ágætlega sótt. Síðan tóku herstöðvaandstæðingar þátt í kröfugöngu verkalýðsfélaganna og héldu þar uppi kröfum um frið og gegn herstöðvum.

Endurskoðunarráðstefna NPT-sáttmálans um að hefta útbreiðslu kjarnorkuvopna var haldin í New York í maí, en á þessu ári eru 30 ár síðan hann tók gildi. Í tilefni af því og ekki síður vegna þess að í ár voru liðin 60 ár frá því kjarnorkusprengjunum var varpað á Hírósíma og Nagasakí stóðu friðarsinnar frá mörgum löndum fyrir miklum fundarhöldum í New York og víðar meðan á ráðstefnunni stóð. Því miður er staðan ekki með besta móti varðandi kjarnorkuafvopnun núna og veldur því ekki síst afstaða núverandi stjórnvalda í Bandaríkjunum. Það er því full ástæða til að herða enn frekar baráttuna fyrir kjarnorkuafvopnun.

Kertafleyting á Reykjavíkurtjörn í minningu þeirra sem fórust í kjarnorkusprengjunum á Hírósíma og Nagasaki fór fram í 21. sinn þann 9. ágúst. Að venju stóð samstarfshópur friðarhreyfinga fyrir kertafleytingunni með drjúgri þátttöku SHA. Þar sem nú voru 60 ár liðin frá þessum ógnarverkum var heldur meira við haft en venjulega og haldin samkoma í sal Ráðhússins þar sem sænski rithöfundurinn og fræðikonan Monica Braw hélt erindi, en hún er einn kunnasti sérfræðingur á Norðurlöndum á þessu sviði.Heimsókn hennar vakti mikla athygli og voru viðtöl við hana í fjölmiðlum. Einnig flutti Guðmundur Georgsson læknir og fyrrverandi formaður SHA ávarp og trúbadorinn Ólafur Torfason flutti frumsamið lag við ljóð Eyrúnar Jónsdóttur. Úti á Tjarnarbakkanum flutti Ingibjörg Haraldsdóttir kennari ávarp og Felix Bergsson las ljóð. Fundarstjóri í ráðhúsinu var Unnur María Bergsveinsdóttir en úti við Tjörnina Páll Óskar Hjálmtýsson. Gífurlegt fjölmenni var við kertafleytinguna og hafa sennilega aldrei fleiri tekið þátt í henni. Kertafleyting var einnig á Akureyri þar sem Valgerður Gunnarsdóttir flutti ávarp en Valgarður Stefánsson las ljóð.

SHA sendu stjórnarskrárnefnd erindi sl. vor með tillögum um að í stjórnarskrána yrðu sett ákvæði um að aldrei verði stofnaður her á Ísandi, Íslandi fari ekki með ófriði á hendur öðrum þjóðum né styði slíkar aðgerðir annarra ríkja og að íslensk lögsaga verði friðlýst fyrir gereyðingarvopnum. Fulltrúi samtakanna mælti fyrir þessum tillögum á ráðstefnu stjórnarskránefndar 11. júní. Þess má geta að Þjóðarhreyfingin með lýðræði að setti fram tillögur í svipuðum anda og tvær fyrstnefndu tillögur SHA. 11. maí, mánuði fyrir þessa ráðstefnu, héldu SHA opinn fund um þessar tillögur í Snarrótarhúsnæðinu í Kjallara Kaffi Hljómalindar við Laugaveg.

Snemma í júní var haldið í Reykjavík námskeið í borgarlegri óhlýðni. Þetta námskeið var að nokkru leyti framhald á námskeiði þeirra Milan Rai og Emily Jones sumarið áður. SHA tóku ekki beinan þátt í námskeiðinu að þessu sinni en veittu 25 þúsund króna styrk til þess.

Snemma í júlí komu rússnesk herskip í kurteisisheimsókn til Reykjavíkur. SHA sendu frá sér ályktun í tilefni af því og átöldu Reykjavíkurborg fyrir að hleypa slíkum drápstólum ítrekað að bryggju. Einnig var mótmælastaða á bryggjunni þar sem dreifibréfum var dreift.

Stærstu tíðindi liðins starfsárs eru væntalega þau að 22. ágúst skrifuðu fulltrúar Friðarhús SHA ehf. undir samning um kaup á húsnæði því sem við eru nú stödd í og tökum formlega notkun í dag. Jafnframt höfum við sagt upp húsnæðinu sem við vorum með á leigu í Hamraborg 11 í Kópavogi. Miðnefnd hélt sinn fyrsta fund í húsinu 15. ágúst, raunar fáeinum dögum áður en það var formlega afhent, en síðan hefur verið fundað hér og hafa verið haldnir opnir fundir, bæði formlegir og óformlegir, á hverjum fimmtudegi að undanförnu. Allmargir félagar hafa einnig lagt fram vinnu við standsetningu húsnæðisins. Það hefur þegar sýnt sig að með tilkomu þessa húss eflist starfið og félagar utan miðnefndar koma meira að starfinu. Stefnt er að því að húsið verði opið á föstum tímum auk þess sem haldnir verða opnir fundir. Unnið hefur verið að fjölgun hluthafa og verður væntalega unnið enn frekar að því á næstunni.

24. september voru geysifjölmennar mótmælaaðgerðir gegn Íraksstríðinu í Bandaríkjunum og Bretlandi. Því miður sáu SHA sér ekki fært að skipuleggja aðgerðir hér að þessu sinni þótt full ástæða væri til þess miðað við hver afstaða ríkisstjórnarinnar er.

Síðan vorið 2003 hefur verið í þróun alþjóðlegt samstarf herstöðvaandstæðinga. M.a. hefur verið settur upp vefurinn nobases.net og hafa verið settar inn á hann upplýsingar um starfsemi Samtaka herstöðvaandstæðinga. Því miður hafa SHA ekki haft tök á að taka beinan þátt í þessu starfi en fylgjast með því. Stefnt er að alþjóðlegri ráðstefnu herstöðvaandstæðinga í Ekvador að frumkvæði þessa alþjóðlega samstarfs og er ætlunin með henni m.a. að koma frekara skipulagi á það. 31. október sl. bárust þær fréttir að ráðstefnan hefði verið ákveðin 7.-10. mars 2007. Alþjóðleg undirbúningsnefnd hefur verið að störfum og hittist meðal annars í tengslum við fund herstöðvaandstæðinga á Alþjóðlega samfélagsþinginu, World Social Forum, í Porto Alegre í Brasilíu í janúar sl. Á þeim fundi var ákveðið að kalla þetta samstarf upp á ensku International Network Against Foreign Military Bases en jafnframt ákveðið styttra nafn til daglegs brúks, No-bases Network. Nú í næstu viku, 7.-10. nóvember verður alþjóðleg ráðstefna herstöðvaandstæðinga í Havana á Kúbu að frumkvæði kúbanskra samtaka og mun undirbúningsnefndin hittast þar.

Varðandi herstöðina á Miðnesheiði er það helst að frétta eins og öllum er kunnugt að Bandaríkjastjórn er enn með áætlanir um að draga mjög úr starfsemi hennar en íslensk stjórnvöld liggja á hnjánum betlandi um að halda henni áfram. Jafnframt halda stjórnvöld áfram að hervæða íslensku friðargæsluna og auka þátttöku Íslands í hernaðarlegri starfsemi NATO.

Vefurinn okkar, friður.is, hefur nú fengið nýtt útlit og skipulag og er stefnt að því að hann verði aðgengilegri og nýtist betur til ýmislegra upplýsinga.

Talsmenn samtakanna hafa nýtt ýmis tækifæri til að kynna starf og málstað samtakanna í fjölmiðlum og fundum, m.a. mætt á fundi í Hafnarfirði, á Akureyri,

Plaggöt voru hengd upp víða um miðbæinn og víðar í desember og aftur í febrúar.

Þess má geta í lokin að einn miðnefndarmanna, Haukur Þorgeirsson, fluttist til Lundúna nú í haust þar sem hann stundar nám.