Samtök herstöðvaandstæðinga voru formlega stofnuð 1975, en munu hafa starfað síðan 1972. Samtökin eru arftaki eldri samtaka, Samtaka hernámsandstæðinga, sem voru stofnuð 10. september 1960 í tengslum við Þingvallafund það ár.

Samtökin gengust fyrir fjölmennum Keflavíkurgöngum á sjöunda áratugnum, en fyrsta Keflavíkurgangan var farin 19. júní 1960. Stjórnkerfi þeirra var byggt á hinum bresku samtökum CND (Campaign for Nuclear Disarmament) og störfuðu stjórnir í hverju kjördæmi, fjölmennt landsráð og aðeins fámennari miðnefnd. Stjórn Samtaka herstöðvaandstæðinga heitir enn miðnefnd og aðalfundur samtakanna landsráðstefna.

Eldri samtök gegn hernáminu

Þjóðvarnarfélagið var stofnað í Reykjavík 1. október 1946 og voru markmið þess að vinna gegn Keflavíkursamningnum og frekari ásælni annarra ríkja á Ísland. Formaður félagsins var Sigurbjörn Einarsson, dósent í guðfræði. Félagið var gert að landsmálafélagi 3. maí 1949 og nefndist þá Þjóðvarnarfélag Íslendinga. Það hætti starfsemi 1951. Það gaf út blaðið Þjóðvörn.

Andspyrnuhreyfing gegn her í landi var stofnuð árið 1953 og var forvígismaður hennar Gunnar M. Magnúss rithöfundur. Áttu þessi samtök samstarf við Sósíalistaflokkinn, en störfuðu ekki lengi.

Þjóðvarnarflokkur Íslands var stofnaður í Reykjavík 15. mars 1953. Þetta var stjórnmálaflokkur sem bauð fram í alþingiskosningum. Fékk hann tvo menn kjörna á þing 1953, Gils Guðmundsson og Berg Sigurbjörnsson, og fulltrúa í sveitarstjórnum 1954. Síðan tók að halla undan fæti, ekki síst vegna þess að Framsóknarflokkur og Alþýðuflokkur höfðu brottför hersins á stefnuskrá í alþingiskosningum 1956. Árið 1963 bauð Þjóðvarnarflokkurinn fram í samvinnu við Alþýðubandalagið, en hætti starfsemi sama ár. Flokkurinn gaf út vikublaðið Frjálsa þjóð sem kom út 1952-1968, seinustu árin á vegum útgáfufélagsins Hugins, en að því stóðu aðilar innan Alþýðubandalagsins.

Ýmislegt úr sögu SHA og friðarbaráttunnar:

Sverrir Jakobsson: Þættir úr sögu Þjóðvarnar 1945–1963
– sem doc-skjal
Birtist í Dagfara 1. tbl. 26. árg. (2000), bls. 28-39

Unnur María Bergsveinsdóttir: Alltaf kátt í höllinni! Um tónleikana Rokk gegn her 1980 og Við krefjumst framtíðar 1983.