Landsfundur 2006
Landsfundur SHA 2006 verður haldinn í Friðarhúsi sunnudaginn 26. nóvember.
Dagskrá:
Kl. 11:00
Hefðbundin aðalfundarstörf, lagabreytingar, samþykkt reikninga, kjör miðnefndar og kynning ályktana.
Léttur hádegisverður
Kl. 14:00
„Hinn eitraði arfur hersetunnar!“ Málþing um mengun af völdum hersins og nauðsynlegar aðgerðir vegna hennar. Snorri Páll Snorrason, jarðfræðingur og Einar Valur Ingimundarson, umhverfisverkfræðingur, ræða málefnið og sitja fyrir svörum.
Kl. 15:30
Afgreiðsla ályktana. Áætluð fundarlok kl. 16.
Fyrir fundinum liggur tillaga frá miðnefnd SHA um breytingu á lögum félagsins, þar sem lagt er til að nafni félagsins verði breytt í Samtök hernaðarandstæðinga.
Breyting á nafni Samtaka herstöðvaandstæðinga?
Umræður um hlutverk og framtíð Samtaka herstöðvaandstæðinga. 20. nóvember 2006
Umræðum um SHA haldið áfram. 22. nóvember 2006