Gegn innrás í Íran - stöðvum stríðið áður en það byrjar!
Þórarinn Hjartarson: Munu þeir ráðast á Íran? 2. ágúst 2008
Yfirlýsing CND um kjarnorkuáætlun Írana. 12. júní 2006
Bresku friðarsamtökin Campaign for Nuclear Disarmament (CND) sendu frá sér yfirlýsingu 10. apríl síðastliðinn varðandi kjarnorkudeiluna við Íran. Í yfirlýsingunni er gerð góð grein fyrir eðli þessa máls og því höfum við þýtt hana til birtingar hér.
Vígvæðing NATO: Bandaríkjamenn koma gagneldflaugum fyrir í Póllandi og Tékklandi. 4. júní 2006
Í grein í New York Times 22. maí var sagt frá því að Bandaríkjastjórn áætli að vera búin að koma upp 10 gagneldflaugum í Evrópu árið 2011. Þessar áætlanir eru hluti að áætlun sem stjórn Bush hefur verið með frá upphafi og birtist meðal annars í því þegar stjórnin sagði upp ABM-samningnum (Antiballistic Missile Treaty) um takmörkun eldflaugavarna árið 2002. Þessar gagneldflaugar eru sagðar vera til varnar árásum frá Norður-Kóreu og Íran.
Sérfræðingar um málefni Mið-Austurlanda segja: Hættið hernaðarógnunum gagnvart Íran! 14. maí 2006
Í síðustu viku var gefin út í Bandaríkjunum áskorun til George W. Bush forseta um láta af hernaðarógnunum gagnvart Írak. Undir þessa áskorun skrifuðu um 200 fræðimenn og fyrrum embættismenn Bandaríkjastjórnar með sérþekkingu á málefnum Mið-Austurlanda og síðan hafa rúmlega 400 bæst við. Áskorunin er svohljóðandi í lauslegri þýðingu:
Meira
Bandaríkjamenn sagðir vera að undirbúa Íransárás. 11. maí 2006
Kjarnorkuárás á Íran í smíðum? 16. mars. 2006
Margir óttast að árás á Íran sé yfirvofandi og óneitanlega minnir síharðandi orðalag bandarískra ráðmanna á aðdraganda innrásarinnar í Írak fyrir þremur árum. Í grein á vefnum Gagnauga.is eru leidd rök að því að Bandaríkjastjórn sé að undirbúa árás á Íran og útiloki jafnvel ekki notkun svokallaðra „minni kjarnorkuvopna“. Greinina er hægt að nálgast hér.
Sverrir Jakobsson: Kjarnorkuvopnavandinn snýst ekki um Íran. 26. febrúar 2006
Gegn innrás í Íran - stöðvum stríðið áður en það byrjar! 18. febrúar 2006
Hafin er undirskriftasöfnun og barátta gegn hugsanlegri árás Bandaríkjanna á Íran. Í því skyni hefur verið sett upp vefsíðan StopWarOnIran.org. Hægt er að skrifa undir yfirlýsinguna hér: http://stopwaroniran.org/petition.shtml. Yfirlýsingin er svohljóðandi í íslenskri þýðingu:
Meira