Eftirfarandi grein eftir Stefán Þorgrímsson birtist í Morgunblaðinu 23. október Við Íslendingar höfum nú fengið að reyna hvernig það er að lenda í spinni breskra stjórnmálamanna. Í spinninu er sannleikanum snúið á hvolf, svart verður hvítt og já þýðir nei. Þegar „misskilningurinn“ hefur nú verið leiðréttur hefur hundruðum milljarða verið kastað fyrir borð og óvíst [...]
Varnir Íslands upp á náð Kínverja?
Frétt í Morgunblaðinu 22. október hófst svo: „Íslendingar munu fagna áramótunum með hefðbundnum hætti. Það geta þeir þakkað kínverska flugeldaframleiðandanum Zhang Zong Lin, sem séð hefur Landsbjörg fyrir flugeldum um marga ára skeið. Hann ákvað að lána Landsbjörg fyrir flugeldunum vegna þess óvissuástands sem ríkir. Landsbjörg býst við minni sölu en undanfarin ár og hefur [...]
Gagnflaugakerfið og „virka utanríkisstefnan“
eftir Finn Dellsén Eftirfarandi grein birtist í vefritinu ogmundur.is 12. september Ein glórulausasta hervæðingarárátta síðustu ára er gagneldflaugavarnarkerfið – stjörnustríðsáætlunin svokallaða – sem Bandaríkjamenn eru nú óða önn að koma upp í Austur-Evrópu. Eins og gefur að skilja brýtur það gegn ABM-samningnum svokallaða um takmörkun gagneldflauga og gegn vígbúnaði í geimnum, sem Bandaríkjamenn eru aðilar [...]
Sjálfstæði Suður-Ossetíu, hagsmunir heimsveldanna og hlutverk NATO
Samræmi og samfella í stefnu stórveldanna markast einungis af hagsmunum þeirra. Þessa vegna hafna Bandaríkin sjálfstæði Suður-Ossetíu en tryggja sjálfstæði Kósovo, og þess vegna hafnar Rússland sjálfstæði Tsjetsjeníu og Kósovo en viðurkennir sjálfstæði Suður-Ossetíu og Abkasíu. Heimsvaldastefna Rússlands er hvorki betri né verri en heimsvaldastefna Bandaríkjanna eða Vesturveldanna. Rússland er bara veikara. En það eru [...]
Bandaríkin hafa komið sér fyrir
eftir Peter M. Johansen Þessi grein birtist 18. ágúst í vefritinu Eggin, sem full ástæða er til að benda lesendum Friðavefjarins á. Herflugvélar frá Bandaríkjunum færa Georgíu hjálpargögn. Eru vopn með í farteskinu? Hálfum sólarhring eftir að fyrsta bandaríska herflugvélin lenti í Tbilisi með hjálpargögn hóf rússneski herinn brottför sína frá Gori að Suður-Ossetíu. Í [...]
Frelsi Suður-Ossetíu?
eftir Sverri Jakobsson Eftirfarandi grein birtist í Fréttablaðinu 12. ágúst Innrás Georgíu í Suður-Ossetíu síðastliðinn fimmtudag hleypti spennuþrungnu ástandi í Kákasuslöndum í bál og brand. Tilraunir Georgíumanna að brjóta sjálfstæðisbaráttu Suður-Ossetíu á bak aftur með hervaldi fóru út um þúfur þar sem Rússar komu héraðinu til aðstoðar og hröktu georgíska hernámsliðið á flótta. Það er [...]
Átökin í Kákasus
eftir Árna Þór Sigurðsson Eftirfarandi grein birtist í Morgunblaðinu 11. ágúst Hernaðarátökin í Kákasus eru hörmuleg eins og stríðsrekstur ævinlega er. Það eru saklausir borgarar sem líða og falla fyrir sprengjum og skotárásum á báða bóga. Það er því brýnt að stöðva átökin milli Georgíu og Rússlands og koma á vopnahléi til að unnt verði [...]
Ávarp á kertafleytingu á Akureyri
Á Akureyri stóð Samstarfshópur um frið (SHA og ÆSKÞ) að kertafleytingu við Minjasafnstjörnina kl. 22.30 fimmtudaginn 7. ágúst í góðu veðri. Ávarp flutti sr. Svavar Jónsson sóknarprestur á Akureyri. Að því loknu fleyttu þátttakendur kertum sínum út á kvöldkyrra tjörnina. Við söfnumst hér saman til að minnast fórnarlamba, tæplega tvöhundruð þúsunda, sem fyrir rúmum sex [...]
Ávarp á kertafleytingu
Kolbrún Halldórsdóttir alþingismaður flutti ávarp á kertafleytingu á Reykjavíkurtjörn miðvikudaginn 6. ágúst. Það fylgir hér á eftir: Við erum hér saman komin til að minnast þeirra sem fórust í þegar Bandaríkin vörpuðu kjarnorkusprengjunum á Hiroshima og Nagasagki fyrir ríflega 60 árum. En einnig til að láta í ljós vilja okkar til baráttu fyrir friði í [...]
Munu þeir ráðast á Íran?
Í dag, 2. ágúst, eru mótmælaaðgerðir víðsvegar um Bandaríkin gegn hugsanlegri innrás í Íran. Sjá nánar vefsíðuna Stop War On Iran. En munu þeir ráðast á Íran? Þórarinn Hjartarson fjallar um þá spurningu hér í þessari grein: Ofanskráð spurning brennur heitt á þeim sem láta sig heimsfriðinn einhverju skipta. En stóru fréttastofurnar umorða spurninguna að [...]
- SHA og MFÍK funda um þjóðernisöfgastefnur 5. október 2011
- Fjárlagafrumvarpið: 1,6 milljarður í hernaðarmál 18. desember 2008
- Ný miðnefnd SHA 16. nóvember 2008
- Ný miðnefnd SHA 6. nóvember 2005
- Fundað um fjármál 29. október 2005
- Afmælisdagskráin 16. maí 13. maí 2012
- 40 ár fyrir friði 10. maí 2012
- Félagsfundur MFÍK: fréttir af Brasilíuförum 8. maí 2012
- 1. maí kaffi SHA 29. apríl 2012
- Málsverður aprílmánaðar 24. apríl 2012