Archive | Greinar RSS feed for this section

Herstöðin á Diego Garcia og mannréttindabrot Breta

Úti í miðju Indlandshafi, um það bil 1600 km suður af Indlandi, er lítil kóraleyja, ákaflega láglend, löng og mjó og liggur einsog skeifa og myndar þannig ágætis hafnarstæði. Þessi eyja heitir Diego Garcia og er stærst af fjölmörgum eyjum Chiagos-eyjaklasans. Eyjarnar tilheyra Bretlandi, Breska Indlandhafssvæðinu (British Indian Ocean Territory (BIOT)). Portúgalski landkönnuðurinn Vasco da [...]

Read full story Comments are closed

Blómin í ánni

Ávarp flutt í tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur þann 9.ágúst 2005 á fundi friðarhreyfinga til minningar um kjanorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki. Í byrjun ágústmánaðar 1945 bættust við landafræðikunnáttu mína heiti á tveimur borgum í Japan, og má ætla að sama hafi gilt um flesta Íslendinga og heimsbyggð mestalla. Þessar borgir voru iðnaðarborgir og ekki mjög fjölmennar [...]

Read full story Comments are closed

Ávarp við kertafleytingu á Reykjavíkurtjörn 9.ágúst 2005

Ágætu friðarsinnar. Við erum samankomin hér við Tjörnina á þessu ágústkvöldi til að minnast fórnarlamba kjarnorkuárásanna á japönsku borgirnar Hírósíma og Nagasakí 6.og 9.ágúst fyrir 60 árum. En við erum ekki einungis að minnast þess saklausa fólks sem lét lífið, eða þoldi ævilangar þjáningar af völdum sprenginganna heldur ekki síður að leggja áherslu á ósk [...]

Read full story Comments are closed

Sprengjurnar

Uppgjöf Japana var yfirvofandi, það var í raun engin ástæða fyrir okkur að beita þessu hroðalega vopni. Tilvitnunin að ofan er ekki úr fengin úr bók einhvers róttæks sagnfræðings eða bláeygðs friðarsinna. Hún er höfð eftir Dwight Eisenhower, yfirhershöfðingja sveita bandamanna í Evrópu og síðar forseta Bandaríkjanna. Hún er í fullu samræmi við það álit [...]

Read full story Comments are closed

„Stríðið gegn hryðjuverkum“ kallar á hryðjuverk

Hryðjuverkin í Lundúnum í morgun, þann 7. júlí 2005, eru óafsakanleg. Slíkan verknað, sem bitnar á óbreyttum borgurum, er ekki hægt að réttlæta. Sem eðlilegt er fylltumst við óhug þegar fréttirnar bárust frá Lundúnum í morgun. Þegar þetta er skrifað síðla dags má lesa í vefútgáfum fjölmiðlanna að 33 manns séu látnir og hátt í [...]

Read full story Comments are closed

Athyglisverð yfirlýsing Þorsteins Pálssonar

Ráðstefna stjórnarskrárnefndar með fulltrúum frjálsra félagasamtaka var haldin að Hótel Loftleiðum í gær, laugardag. Samtök herstöðvaandstæðinga voru í hópi þeirra félaga sem létu þar til sín taka, eins og fram hefur komið. Fulltrúi SHA í pallborðsumræðum var Einar Ólafsson, ritari samtakanna. Nokkra athygli vakti í umræðunum að Þorsteinn Pálsson, einn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í endurskoðunarnefndinni, vék [...]

Read full story Comments are closed

Kjarnorkuvopnalaus Evrópa?

Endurskoðunarráðstefnu NPT-samningsins um bann við útbreiðslu kjarnorkuvopna sem hófst í New York 2. maí lauk þann 27. Andstæðingar kjarnorkuvopna voru ekki sérlega bjartsýnir með þessa ráðstefnu enda hefur horft heldur illa með kjarnorkuafvopnun síðan síðasta ráðstefna var haldin fyrir fimm árum og má helst kenna bandarískum stjórnvöldum um eins og rakið var í grein hér [...]

Read full story Comments are closed

Baráttan gegn kjarnorkuvopnum og ábyrgð Bandaríkjanna

Þegar þetta er skrifað stendur yfir í New York ráðstefna um endurskoðun samningsins um bann við útbreiðslu kjarnorkuvopna, NPT-samningsins. Þessi samningur hefur verið mjög mikilvægur. Þegar hann var undirritaður fyrir 35 árum var viðurkennt að fimm lönd ættu kjarnorkuvopn, Bandaríkin, Sovétríkin (nú Rússland), Bretland, Frakkland og Kína. Nokkur lönd voru að koma sér upp kjarnorkuvopnum [...]

Read full story Comments are closed

Listi þeirra sem sáu að sér

Þessi grein Einars Ólafssonar, ritara SHA, birtist í fréttablaðinu 28. janúar sl. Það er svolítið undarlegar umræður þessa dagana um lista hinna viljugu þjóða eða ríkja. Menn deila meðal annars um hvort einhver listi sé til, hvort hann hafi einhverntíma verið til, hvort hann sé til enn, hvort sé eitthvert mark takandi á honum hafi [...]

Read full story Comments are closed