Archive | Fundir og atburðir RSS feed for this section

Fimmtudagsfundur um stefnuskrá

Stefnuskrá Samtaka herstöðvaandstæðinga var samþykkt á landsráðstefnu síðla árs 1995. Stefnt er að því að ræða stefnuskránna á aðalfundi SHA laugardaginn 5. nóvember næstkomandi og er undirbúningsvinna þegar hafin. Fimmtudagskvöldið 20. október kl. 20 verður boðað til fundar í Friðarhúsi, nýjum húsakynnum SHA á horni Snorrabrautar og Njálsgötu. Þar verður dreift drögum að nýrri stefnuskrá [...]

Read full story Comments are closed

Fundað um fjármál

Hið nýja húsnæði SHA, Friðarhúsið á horni Snorrabrautar og Njálsgötu, er óðum að taka á sig mynd. Fjöldi sjálfboðaliða hefur unnið að standsetningu húsnæðisins síðustu vikur, en til að standa undir slíkum rekstri er ekki nægilegt að hafa vaskar hendur. Fjármuna er þörf til að standa undir rekstri og afborgunum. Fimmtudagskvöldið 13. okt. kl. 20 [...]

Read full story Comments are closed

60 ár frá kjarnorkuárásum á Hiroshima og Nagasaki – minningarfundur í Ráðhúsinu

Þriðjudaginn 9. ágúst minnast íslenskar friðarhreyfingar þess að 60 ár eru liðin frá því að kjarnorkusprengjum var varpað á japönsku borgirnar Hiroshima og Nagasaki. Að venju verður kertum fleytt á Reykjavíkurtjörn og við minjasafnið á Akureyri. Hefjast athafnirnar kl. 22:30. Nánar má lesa um dagskrá þeirra hér að neðan. Í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur verður samkoma [...]

Read full story Comments are closed

Fimmtudagsfundur í Friðarhúsi

SHA stendur fyrir fundum í Friðarhúsi öll fimmtudagskvöld. Dagskrá kynnt síðar.   Deila á Facebook

Read full story Comments are closed