Dagskrá afmælishátíðar SHA í Iðnó miðvikudagskvöldið 16. maí er óðum að taka á sig mynd. Samkoman hefst stundvíslega kl. 20, en húsið verður opnað hálftíma fyrr. Ókeypis aðgangur meðan húsrúm leyfir. Árni Björnsson segir frá aðdragandanum að stofnun SHA 1972 Fjöldi tónlistaratriða: Heiða Eiríksdóttir Svavar Knútur Jara Þorvaldur Þorvaldsson Einar Már & Blágresi Bjartmar [...]
40 ár fyrir friði
Samtök hernaðarandstæðinga rekja sögu sína aftur til Glæsibæjarfundarins sem haldinn var 16. maí árið 1972. Samtökin fagna því 40 ára afmæli og munu að því tilefni standa fyrir samkomu í Iðnó að kvöldi miðvikudagsins 16. maí (kvöldið fyrir uppstigningardag). Fjöldi tónlistarmanna og annars listafólks mun koma fram á dagskránni, þar sem lög sem tengjast sögu friðarbaráttunnar [...]
Félagsfundur MFÍK: fréttir af Brasilíuförum
Opinn félagsfundur MFÍK verður miðvikudaginn 9. Maí kl. 19 í Friðarhúsi. Þær Harpa Stefánsdóttir, formaður, og Sigurlaug Gunnlaugsdóttir, varaformaður MFÍK, segja frá heimsþingi WIDF (Alþjóðasamtök lýðræðissinnaðra kvenna) sem haldið var í Brasilíu í apríl. Léttur kvöldverður seldur á 1500 kr. í upphafi fundar. Húsið opnar kl. 18.30. Takið endilega með ykkur gesti. Allir velkomnir. Deila á Facebook
1. maí kaffi SHA
Hið rómaða 1. maí kaffi SHA verður haldið í Friðarhúsi á baráttudegi verkalýðsins og hefst kl. 11. Það stendur fram að kröfugöngu verkalýðshreyfinganna sem leggur af stað frá Hlemmi. Líkt og undanfarinn aldarfjórðung er kaffigjald kr. 500. Allir velkomnir. Deila á Facebook
Málsverður aprílmánaðar
Fjáröflunarmálsverður Friðarhúss, sá fyrsti eftir stórtækar framkvæmdir á ytra byrði hússins, verður haldinn föstudagskvöldið 27. apríl n.k. og hefst borðhald að venju kl. 19. Matseldin verður að þessu sinni sameiginlegt verkefni Láru Jónu Þorsteinsdóttur, Þorvaldar Þorlvaldssonar og Alvins Níelssonar, félaga í SHA. Matseðill: * Víðfræg fiskisúpa * Grænmetissúpa Nánari upplýsingar um dagskrá verða birtar síðar. [...]
VÍK og MFÍK í Friðarhúsi 18. apríl
MFÍK og VÍK (VInáttufélag Íslands og Kúbu efna til sameiginlegs fundar í Friðarhúsi miðvikudagskvöldið 18. apríl n.k. kl. 19. Margrét Guðmundsdóttir, Eyjólfur Eyvindarson og fleiri segja frá og sýna myndir frá dvöl sinni á Kúbu í desember síðastliðnum. Léttur kvöldverður seldur í upphafi fundar. Allir velkomnir. Deila á Facebook
30. mars í Friðarhúsi
30. mars er mikilvæg dagsetning í sögu íslenskrar friðarbaráttu, en þann dag var aðild Íslands að Nató samþykkt á Alþingi þrátt fyrir víðtæk mótmæli og kröfu um þjóðaratkvæðagreiðslu. Að þessu sinni ber 30. mars upp á síðasta föstudag í mánuði, en þá daga hafa fjáröflunarmálsverðir Friðarhúss einatt farið fram. Því verða slegnar tvær flugur í [...]
Framkvæmdir við Friðarhús – viltu gerast hluthafi?
Um þessar mundir er unnið að stórframkvæmdum við húseignina Njálsgötu 87, sem hýsir Friðarhús SHA. Meðal annars verður þak hússins lagfært, unnið í gluggum og byggingin öll steinuð að utan. Þessar endurbætur hafa verið brýnar lengi og fulltrúar Friðarhúss hvatt til þess að ráðist yrði í þær á vettvangi húsfélagsins. Að þeim loknum verður Njálsgata [...]
8. mars
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti- Vorið kallar Iðnó, kl. 17-18:30 Fundarstjóri: Kolbrún Halldórsdóttir Ávörp: * Claudia Ashonie: Menntun kvenna af erlendum uppruna á Íslandi og atvinna að námi loknu * Védís Guðjónsdóttir: Saman eða sundur * Sigríður Rut Hilmarsdóttir: Vinna með barnalýðræði * Steinunn Þóra Árnadóttir: Kjósum burt NATÓ! * Soumia Islami: Barátta kvenna í [...]
Miðnefnd SHA fundar
Fastir miðnefndarfundir Samtaka hernaðarandstæðinga eru fyrsta þriðjudag í mánuði, kl. 19:30 í Friðarhúsi. Minnt er á að miðnefndarfundir eru opnir öllum félagsmönnum í samtökunum. Deila á Facebook
- SHA og MFÍK funda um þjóðernisöfgastefnur 5. október 2011
- Fjárlagafrumvarpið: 1,6 milljarður í hernaðarmál 18. desember 2008
- Ný miðnefnd SHA 16. nóvember 2008
- Ný miðnefnd SHA 6. nóvember 2005
- Fundað um fjármál 29. október 2005
- Afmælisdagskráin 16. maí 13. maí 2012
- 40 ár fyrir friði 10. maí 2012
- Félagsfundur MFÍK: fréttir af Brasilíuförum 8. maí 2012
- 1. maí kaffi SHA 29. apríl 2012
- Málsverður aprílmánaðar 24. apríl 2012
