Landsfundur SHA var haldinn í Friðarhúsi 25.-26. nóvember. Ný miðnefnd var kjörin á fundinum. Hana skipa: Auður Lilja Erlingsdóttir, Bergljót Njóla Jakobsdóttir, Elías Jón Guðjónsson, Harpa Stefánsdóttir, Hildur Lilliendahl, Sigurður Flosason, Stefán Pálsson (formaður), Þorvaldur Þorvaldsson og Þórir Hrafn Gunnarsson. Varamenn: Jóhann Páll Jóhannsson, Kolbeinn Hólmar Stefánsson, Snæbjörn Guðmundsson. Þrjár ályktanir voru samþykktar á fundinum: 1. Ályktun um herskipakomur Landsfundur Samtaka hernaðarandstæðinga fagnar þeirri stefnubreytingu sem orðið hefur hjá [...]
Blysför til friðar á Akureyri á Þorláksmessu 2009
Á Þorláksmessu var gengið til friðar niður Laugaveginn í Reykjavík í þrítugasta sinn. Þar flutti Einar Már Guðmundsson ávarp. Á Ísafirði fluttu Elsa Þorgeirsdóttir og Þórhallur Arason ávörp. Á á Akureyri var nú farin blysför gegn stríði í áttunda sinn í röð og stóð Friðarframtak fyrir henni undir kjörorðunum – Frið í Írak og Afganistan! [...]
Ályktun gegn aðflugsæfingum Nató á Akureyrarflugvelli.
Samtök hernaðarandstæðinga á Norðurlandi lýsa furðu sinni á því að utanríkisráðherra þjóðarinnar skuli heimila aðflugsæfingar orrustuflugvéla Atlantshafsbandalagsins og vörslu hergagna þess á Akureyrarflugvelli undir yfirskini loftrýmiseftirlits. Samtökin krefjast þess að herafli bandalagsins yfirgefi Akureyri án tafar og að utanríkisráðherra biðji þjóðina afsökunar á þeirri fylgisspekt hans við Bandaríkjaher sem hér birtist. Slíkur stuðningur við núverandi [...]
Ályktun í tilefni af heræfingunni Norðurvíkingi
Samtök hernaðarandstæðinga lýsa vonbrigðum sínum með að íslensk stjórnvöld skuli eina ferðina enn ákveða að gera landið að æfingasvæði erlends herliðs. Heræfingingar þær sem ganga undir nafninu Norðurvíkingur, eru leifar frá kalda stríðinu og hafa engu jákvæðu hlutverki að gegna fyrir íslenskt samfélag eða umheiminn. Það er umhugsunarefni hvers vegna íslenskir ráðamenn hafi í seinni [...]
Ályktanir um friðargæslu & vopnaflutninga
Miðnefnd SHA hefur sent frá sér eftirfarandi ályktanir: Samtök hernaðarandstæðinga fagna yfirlýsingu utanríkisráðherra þess efnis að íslenskir friðargæsluliðar muni eftirleiðis ekki bera vopn við störf sín. Ákvörðun þessi er mikið heillaspor og getur stuðlað að því að Íslendingar muni í framtíðinni koma að meira gagni á stríðshrjáðum svæðum jarðar en nú er. Samtök hernaðarandstæðinga hafa [...]
Samtök hernaðarandstæðinga leita svara um vígbúnaðarstefnu ríkisstjórnarinnar
Samtök hernaðarandstæðinga hafa sent ríkisstjórninni athugasemdir og spurningar vegna yfirlýsingar leiðtogafundar NATO í Búkarest í byrjun apríl. Með setu sinni á fundinum hafa ráðherrarnir samþykkt þá stefnu sem fram kemur í yfirlýsingunni. Samkvæmt yfirlýsingunni hyggst NATO taka enn meiri þátt í stríðsrekstrinum í Írak, sem ríkisstjórnin harmaði í stefnuyfirlýsingu sinni og Samfylkingin var andvíg frá [...]
15. mars – stíðinu verður að linna
Útifundur á Ingólfstorgi kl. 13 laugardaginn 15. mars Sjá nánar Tillögur SHA um aðgerðir til að binda endi á hernám Íraks og koma á friði í landinu Samtök hernaðarandstæðinga hafa afhent utanríkisráðherra, utanríkismálanefnd Alþingis og þingflokkum stjórnmálaflokkanna tillögur um aðgerðir til að binda endi á hernám Íraks og koma á friði í landinu. Tillögurnar eru [...]
Friðarvefurinn og Samtök hernaðarandstæðinga óska landsmönnum árs og friðar
Því miður hafa vonir um heim án styrjalda og stríðsæsinga, án vígtóla og gegndarlausra hernaðarútgjalda, ekki glæðst á árinu sem er að líða. Þó eru vissulega góð teikn á lofti, en þau koma því miður ekki frá þeim sem sitja við stjórnvölinn, þvert á móti, það er almenningur sem hefur fundið sig knúinn til að [...]
Ályktun IV – tilmæli til fréttastofu RÚV
Eftirfarandi tilmæli til fréttastofu Ríkisútvarpsins voru samþykkt á landsfundi SHA um helgina. (Öðrum fjölmiðlum er að sjálfsögðu heimilt að tileinka sér efni þeirra.) Tilmæli til fréttastofu Ríkisútvarpsins Í áratugi hafa áróðursheitin varnarsvæði, varnarlið, varnarbúnaður o.s.frv. tíðkast í umræðu um umsvif og aðstöðu bandaríska hersins á Íslandi. Nú þegar herinn er farinn og blekkingarnar um varnargildi [...]
Ályktun III – um almannavarnir og heræfingar
Eftirfarandi ályktun var samþykkt á landsfundi SHA í Friðarhúsi, laugardaginn 24. nóvember 2007: Um almannavarnir og heræfingar Landsfundur SHA haldinn laugardaginn 24. nóvember 2007 varar sterklega við þeirri tilhneigingu sem orðið hefur vart á síðustu misserum að spyrða saman borgaralegar öryggisstofnanir samfélagsins, svo sem almannavarnir, landhelgisgæslu, lögreglu og björgunarsveitir við hernaðarlega starfsemi – eins og [...]
- SHA og MFÍK funda um þjóðernisöfgastefnur 5. október 2011
- Fjárlagafrumvarpið: 1,6 milljarður í hernaðarmál 18. desember 2008
- Ný miðnefnd SHA 16. nóvember 2008
- Ný miðnefnd SHA 6. nóvember 2005
- Fundað um fjármál 29. október 2005
- Fjáröflunarmálsverður maímánaðar 21. maí 2012
- Afmælisdagskráin 16. maí 13. maí 2012
- 40 ár fyrir friði 10. maí 2012
- Félagsfundur MFÍK: fréttir af Brasilíuförum 8. maí 2012
- 1. maí kaffi SHA 29. apríl 2012
