Kaíró-ráðstefnurnar
Fyrsta Kaíró-ráðstefnan var haldin í aðdraganda innrásarinnar í Írak, 17. til 18. desember 2002, og hittust þar einstaklingar og fulltrúa baráttusamtaka og hreyfinga gegn stríðsundirbúningnum frá allmörgum löndum. Undirbúningur hinna fjölmennu mótmælaaðgerða 18. janúar og 15. febrúar 2003 var þá í uppsiglingu. Á þessari ráðstefnu voru lögð drög að enn frekara alþjóðlegu samstarfi og samþykkt yfirlýsing, Fyrsta Kaíró-yfirlýsingin. Í þeirri yfirlýsingu voru stríðsáform Bandaríkjastjórnar sett í víðara samhengi. Bent var á pólitíska, efnahagslega og hernaðarlega yfirburði Bandaríkjanna í hinu kapítalíska hanttvæðingarferli og hvernig Bandaríkin voru fyrir 11. september farin að beita ofbeldi og yfirgangi til að viðhalda stöðu sinni og styrkja hana.
Þessar ráðstefnur hafa síðan verið haldnar árlega. Önnur ráðstefnan var 12. til 13. desember 2003 og sendi hún frá sér Aðra Kaíró-yfirlýsinguna. Þriðja ráðstefnan var haldin 24. til 27. mars 2005. Fjórða Kaíró-ráðstefnan var haldin dagana 23.-26. mars 2006. Fimmta ráðstefnan var 29. mars til 1. apríl 2007.
Á sjöttu ráðstefnuna, sem var haldin 27. til 30. mars 2008, fóru tveir Íslendingar, þau Rósa Eyvindardóttir og Vésteinn Valgarðsson.
Fyrsta Kaíró-yfirlýsingin (1st Cairo Declaration)
Önnur Kaíró-yfirlýsingin (2nd Cairo Declaration)
Þriðja Kaíró-ráðstefnan (3rd Cairo Conference)
Fjórða Kaíró-yfirlýsingin (4th Cairo Declaration)
Fimmta Kaíró-yfirlýsingin (5th Cairo Declaration)
Sjötta Kaíró-yfirlýsingin (6th Cairo Declaration) (á ensku - English)
Sjötta Kaíró-yfirlýsingin (6th Cairo Declaration) (á arabísku - Arabic)
Nánari upplýsingar:
Wikipedia
Nej til krig
Stop the War Coalition