Monthly Archives

April 2012

1. maí kaffi SHA

By Uncategorized

Hið rómaða 1. maí kaffi SHA verður haldið í Friðarhúsi á baráttudegi verkalýðsins og hefst kl. 11. Það stendur fram að kröfugöngu verkalýðshreyfinganna sem leggur af stað frá Hlemmi.

Líkt og undanfarinn aldarfjórðung er kaffigjald kr. 500. Allir velkomnir.

Málsverður aprílmánaðar

By Uncategorized

Fjáröflunarmálsverður Friðarhúss, sá fyrsti eftir stórtækar framkvæmdir á ytra byrði hússins, verður haldinn föstudagskvöldið 27. apríl n.k. og hefst borðhald að venju kl. 19.

Matseldin verður að þessu sinni sameiginlegt verkefni Láru Jónu Þorsteinsdóttur, Þorvaldar Þorlvaldssonar og Alvins Níelssonar, félaga í SHA.

Matseðill:

* Víðfræg fiskisúpa

* Grænmetissúpa

Nánari upplýsingar um dagskrá verða birtar síðar. Verð kr. 1.500.

VÍK og MFÍK í Friðarhúsi 18. apríl

By Uncategorized

MFÍK og VÍK (VInáttufélag Íslands og Kúbu efna til sameiginlegs fundar í Friðarhúsi miðvikudagskvöldið 18. apríl n.k. kl. 19.

Margrét Guðmundsdóttir, Eyjólfur Eyvindarson og fleiri segja frá og sýna myndir frá dvöl sinni á Kúbu í desember síðastliðnum.

Léttur kvöldverður seldur í upphafi fundar.

Allir velkomnir.