Síðastliðinn laugardag, 22. ágúst, reistu Samtök hernaðarandstæðinga á Norðurlandi Nató níðstöng við Akureyrarflugvöll. Þórarinn Hjartarson magnaði þennan seið þegar níðstöngin var reist: Heyrið og nemið níð það sem hér er reist og rist. Níðinu sný ég gegn orustuflugdrekum þeim sem ógna lofthelgi okkar, og makki íslenskra stjórnvalda þar um. Níðinu sný ég gegn hernum sem [...]
Mótmælastaða á Akureyri
Mótmælastaða Samtaka hernaðarandstæðinga á Norðurlandi vegna aðflugsæfinga Nató við Akureyrarflugvöll. Í dag, fimmtudaginn 20. ágúst, sveimuðu bandarískar orrustuþotur yfir Akureyrarflugvelli í svokölluðum aðflugsæfingum. Samkvæmt Varnarmálastofnun eru umræddar æfingar venjubundinn hluti af hinni svökölluðu loftrýmisgæslu Nató. Gjörningurinn er ekki geðslegri fyrir það að hann sé bundinn venju. Samtök hernaðarandstæðinga á Norðurlandi óska þess að hernaðarbandalagið Nató [...]
Illur gestur: ályktun frá SHA
Samtök hernaðarandstæðinga minna á þau gömlu sannindi að sjaldan er ein báran stök. Íslenskt efnahagslíf hefur lent í mörgum stóráföllum á undanförnum mánuðum, jarðfræðingar fylgjast með kvikusöfnun í mörgum af helstu eldstöðvum landsins og nú síðast hefur verið tilkynnt að von sé á aðalritara Nató, Anders Fogh Rasmussen til landsins í vikunni. Allt eru þetta [...]
Einkasamkvæmi í Friðarhúsi
Friðarhús er í útláni þetta kvöld. Deila á Facebook
Ávarp á kertafleytingu á Reykjavíkurtjörn
Stefán Pálsson, sagnfræðingur og formaður Samtaka hernaðarandstæðinga, flutti eftirfarandi ávarp á kertafleytingu Samstarfshóps friðarhreyfinga að kvöldi 6. ágúst. Félagar Í tuttugasta og fimmta sinn erum við saman komin til að fleyta kertum hér á Reykjavíkurtjörn. Á þessum langa tíma höfum við fengið sýnishorn af öllum mögulegum veðrum. Við höfum fleytt í rjómablíðu, úrhellisrigningu og hávaðaroki. [...]
Ávarp á kertafleytingu á Akureyri
Á kertafleytingu á Akureyri, 6. ágúst 2009, flutti Brynhildur Þórarinsdóttir rithöfundur eftirfarandi ávarp: Kæru vinir, Í dag eru 64 ár liðin frá kjarnorkuárásinni á japönsku borgina Hiroshima. Þennan dag árið 1945 var gríðarlegum fjölda óbreyttra borgara fórnað til að binda endi á stríð sem þegar var á enda. Nærri tífaldur íbúafjöldi Akureyrar lést samstundis en [...]
Risaveldi á flótta – mótmælum frestað!
Bandaríska herveldið virðist hafa hörfað undan friðarvilja Norðlendinga. Aðflugsæfingum hefur a.m.k. verið frestað um óákveðinn tíma. Fyrir vikið hafa Samtök hernaðarandstæðinga á Norðurlandi ákveðið að fresta fyrirhugaðri mótmælastöðu við Akureyrarflugvöll klukkan 14.30, laugardaginn 8. ágúst. Samtökin hafa þó haft njósnir af því að hernaðarbrölti sé ekki lokið á Akureyrarflugvelli og að umræddar æfingar muni fara [...]
Mótmælastaða við Akureyrarflugvöll laugardaginn 8. ágúst klukkan 14.30
Á úlfurinn að vernda lambið? Samtök hernaðarandstæðinga á Norðurlandi efna til mótmælastöðu við Akureyrarflugvöll laugardaginn 8. ágúst klukkan 14.30 til að mótmæla aðflugsæfingum bandarískra orrustuflugvéla og vörslu hergagna á flugvellinum. Samtökin mótmæla harðlega þeim heræfingum NATO sem hér eru stundaðar undir yfirskyni loftrýmisgæslu fyrir Ísland. Þær ógnir sem nú steðja að íslensku sjálfstæði eru frá [...]
Kertafleyting 6. ágúst í Reykjavík, á Akureyri, Egilsstöðum og í Vestmannaeyjum
Kertafleyting verður á fjórum stöðum á landinu fimmtudagskvöldið 6. ágúst kl. 22:30: í Reykjavík, á Akureyri, Egilsstöðum og í Vestmannaeyjum. Í Reykjavík verður safnast saman við suðvesturbakka Tjarnarinnar (við Skothúsveg). Þar mun Stefán Pálsson, formaður Samtaka hernaðarandstæðinga flytja stutt ávarp. Fundarstjóri verður Eva María Jónsdóttir dagskrárgerðarkona. Að venju verða flotkerti og friðarmerki seld á staðnum. [...]
- SHA og MFÍK funda um þjóðernisöfgastefnur 5. október 2011
- Fjárlagafrumvarpið: 1,6 milljarður í hernaðarmál 18. desember 2008
- Ný miðnefnd SHA 16. nóvember 2008
- Ný miðnefnd SHA 6. nóvember 2005
- Fundað um fjármál 29. október 2005
- Fjáröflunarmálsverður maímánaðar 21. maí 2012
- Afmælisdagskráin 16. maí 13. maí 2012
- 40 ár fyrir friði 10. maí 2012
- Félagsfundur MFÍK: fréttir af Brasilíuförum 8. maí 2012
- 1. maí kaffi SHA 29. apríl 2012