Næstkomandi laugardagur verður langur laugardagur á Laugaveginum og þar um kring. Að venju verður þá líka langur laugardagur og opið hús í Friðarhúsinu Njálsgötu 87. Húsið verður opnað klukkan eitt. Þessi laugardagur verður einkum helgaður undirbúningi fyrir aðgerðirnar 15. mars. Þann 20. mars verða liðin fimm ár frá innrásinnni í Írak og dagana á undan [...]
Langur laugardagur í Friðarhúsi – undirbúningur fyrir aðgerðir 15. mars
Fjáröflunarmálsverður Friðarhúss – í umsjón MFÍK
Hinn sívinsæli mánaðarlegi fjáröflunarmálsverður Friðarhúss verður haldinn föstudagskvöldið 29. feb. kl. 19. Að þessu sinni verður samkoman í umsjón Menningar- og friðarsamtakanna MFÍK. Kokkur kvöldsins er Veróníka S.K. Palaniandy (Rúbý) frá Singapúr. Matseðillinn verður mátulega framandi til að falla öllum í geð: * Kjötbollur (nautakjöt) með ferskum grænum piparkornum, basilíku og myntu. * Gular baunir [...]
Fundur sögunefndar
Sögunefnd Friðarhreyfinganna fundar í Friðarhúsi. Deila á Facebook
15. mars: Stríðinu verður að linna
Alþjóðlegar aðgerðir gegn Íraksstríðinu dagana 15.-22. mars 2008 20. mars verða liðin fimm ár frá því innrásin í Írak hófst. Síðan hefur verið stríðsástand í landinu. Enginn veit hversu margir hafa dáið af völdum stríðsins, en ljóst er tala þeirra hleypur á hundruðum þúsunda. Talið er að af 26 milljónum íbúa í landinu séu um [...]
Alþingi ítrekar fordæmingu sína á fangabúðunum í Guantanamo
Við höfum sagt frá tillögu sem lögð var fram á Alþingi 17. janúar um að fordæma fangabúðirnar í Guantanomo (sjá hér). Tillögunni var samkvæmt hefð vísað til utanríkismálanefndar og annarrar umræðu en í fyrri umræðu kom fram stuðningur við tillöguna frá þingmönnum allra flokka. Í dag, 6. febrúar, var af gefnu tilefni aftur vikið að [...]
Félagsfundur SHA um varnarmálafrumvarp
Fyrir Alþingi liggur frumvarp ríkisstjórnarinnar um varnarmál, þar sem fjallað er um ýmis þau málefni sem SHA hafa sett á oddinn á liðnum árum, s.s. aðstöðu erlendra hersveita, heræfingar hér á landi o.s.frv. Frumvarpið má lesa ásamt greinargerð hér á vef Alþingis. Afar brýnt er að SHA bregðist við frumvarpinu. Því verður efnt til almenns [...]
Orrustuþotur ógna öryggi farþegaflugs
Steinunn Þóra Árnadóttir, virkur félagi í SHA, situr nú á þingi sem varaþingmaður og hefur látið til sín taka varðandi hernaðar- og friðarmál. Fimmtudaginn 31. janúar bar hún fram fyrirspurn vegna frétta um að danskar orrustuþotur hafi ítrekað flogið of nærri farþegaflugvélum. Fyrirspurn Steinunnar var svohljóðandi: „Virðulegi forseti. Í síðustu viku voru fluttar fregnir af [...]
Fjáröflunarmálsverður Friðarhúss
Félagar í MFÍK sjá um málsverðinn að þessu sinni. Deila á Facebook
- SHA og MFÍK funda um þjóðernisöfgastefnur 5. október 2011
- Fjárlagafrumvarpið: 1,6 milljarður í hernaðarmál 18. desember 2008
- Ný miðnefnd SHA 16. nóvember 2008
- Ný miðnefnd SHA 6. nóvember 2005
- Fundað um fjármál 29. október 2005
- Fjáröflunarmálsverður maímánaðar 21. maí 2012
- Afmælisdagskráin 16. maí 13. maí 2012
- 40 ár fyrir friði 10. maí 2012
- Félagsfundur MFÍK: fréttir af Brasilíuförum 8. maí 2012
- 1. maí kaffi SHA 29. apríl 2012