Elías Davíðsson 26. nóvember 2007 Við erum öll samherjar gegn hernaðarhyggju og hernaði. Þess vegna sperrum við eyrun í hvert skipti sem við höfum heyrt minnst á „varnir“ eða „hervarnir“. Andstæðingar friðar, velferðar og réttlætis breyta stundum um áherslur. Við verðum þá einnig að geta endurskoðað áherslur okkar. Meðan Sovétríkin voru til, notuðu andstæðingar okkar [...]
Undirbúningur vegna Þorláksmessugöngu
Samstarfshópur friðarhreyfinga fundar í Friðarhúsi. Deila á Facebook
Upplestur á málsverði
Staðfest hefur verið að rithöfundurinn Óskar Árni Óskarsson mun lesa úr verkum sínum á fjáröflunarmálsverði Friðarhúss á föstudagskvöld (sjá auglýsingu hér að neðan). Jafnframt verður boðið upp á óvænt tónlistaratriði. Deila á Facebook
Málsverður í Friðarhúsi
Fjáröflunarmálsverðurinn í Friðarhúsi, föstudagskvöldið 30. nóvember er glæsilegt jólahlaðborð, en matseðillinn er á þessa leið: Heimalöguð sænsk jólaskinka með karöflusalti, gulrótar appelsínusalati og sinnepssósu Heimagerð lifrakæfa (verður borin fram heit) og heimagert rúgbrauð Karrýsíld Tómatsalsasíld. Fyrir þá sem ekki borða kjöt verður hnetusteik. Kaffi og konfekt Guðrún V. Bóasdóttir(Systa) sér um matseld. Verð kr 1500. [...]
Ályktun IV – tilmæli til fréttastofu RÚV
Eftirfarandi tilmæli til fréttastofu Ríkisútvarpsins voru samþykkt á landsfundi SHA um helgina. (Öðrum fjölmiðlum er að sjálfsögðu heimilt að tileinka sér efni þeirra.) Tilmæli til fréttastofu Ríkisútvarpsins Í áratugi hafa áróðursheitin varnarsvæði, varnarlið, varnarbúnaður o.s.frv. tíðkast í umræðu um umsvif og aðstöðu bandaríska hersins á Íslandi. Nú þegar herinn er farinn og blekkingarnar um varnargildi [...]
Ályktun III – um almannavarnir og heræfingar
Eftirfarandi ályktun var samþykkt á landsfundi SHA í Friðarhúsi, laugardaginn 24. nóvember 2007: Um almannavarnir og heræfingar Landsfundur SHA haldinn laugardaginn 24. nóvember 2007 varar sterklega við þeirri tilhneigingu sem orðið hefur vart á síðustu misserum að spyrða saman borgaralegar öryggisstofnanir samfélagsins, svo sem almannavarnir, landhelgisgæslu, lögreglu og björgunarsveitir við hernaðarlega starfsemi – eins og [...]
Ályktun II – um hernaðinn í Írak
Eftirfarandi ályktun var samþykkt á landsfundi SHA í Friðarhúsi, laugardaginn 24. nóvember 2007: Um stríðið í Írak Samtök hernaðarandstæðinga lýsa yfir ánægju sinni með þá ákvörðun utanríkisráðherra, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, að kalla heim liðsmann Íslands í hernámsliðinu í Írak. Jafnframt minna SHA á að stuðningur Íslands við Íraksstríðið – sem samkvæmt rannsóknum hefur kostað hundruð [...]
Ályktun I – um öryggismál Íslands
Eftirfarandi ályktun var samþykkt á landsfundi SHA í Friðarhúsi, laugardaginn 24. nóvember 2007: Um öryggismál Íslands Ýmsar goðsagnir hafa gufað upp á undanförnum misserum í kjölfar brotthvarfs bandaríska setuliðsins frá Miðnesheiði. Í fyrsta lagi hefur komið í ljós að öryggi Íslendinga er þrátt fyrir allt ekki bundið við veru hers eða tiltekins fjölda orrustuflugvéla á [...]
Ný miðnefnd SHA
Landsfundur SHA var haldinn í Friðarhúsi í dag, laugardag. Helstu niðurstöður og ályktanir fundarins verða kynntar á þessum vettvangi á næstu dögum. Ný miðnefnd var kjörin á fundinum. Hana skipa: Aðalmenn Erla Guðrún Gísladóttir Kolbeinn Óttarsson Proppé Kristinn Schram Júlía Margrét Einarsdóttir Sigurður Flosason Stefán Pálsson (formaður) Steinunn Rögnvaldsdóttir Þorvaldur Þorvaldsson Þórður Sveinsson Varamenn Bergljót [...]
Landsfundardagskrá SHA
Landsfundur SHA verður haldinn í Friðarhúsi laugardaginn 24. nóvember, eins og áður hefur verið kynnt á þessum vettvangi. Dagskrá fundarins er sem hér segir: 11:00 – Venjuleg aðalfundarstörf (kjör miðnefndar, samþykkt reikninga o.þ.h.) Hádegi – léttur málsverður 13:30 – Þorskastríð, herinn og NATO. Kynntar nýjar rannsóknir sagnfræðingsins Guðmundar J. Guðmundssonar á sögu landhelgisdeilna Íslendinga og [...]
- SHA og MFÍK funda um þjóðernisöfgastefnur 5. október 2011
- Fjárlagafrumvarpið: 1,6 milljarður í hernaðarmál 18. desember 2008
- Ný miðnefnd SHA 16. nóvember 2008
- Ný miðnefnd SHA 6. nóvember 2005
- Fundað um fjármál 29. október 2005
- Fjáröflunarmálsverður maímánaðar 21. maí 2012
- Afmælisdagskráin 16. maí 13. maí 2012
- 40 ár fyrir friði 10. maí 2012
- Félagsfundur MFÍK: fréttir af Brasilíuförum 8. maí 2012
- 1. maí kaffi SHA 29. apríl 2012