Samantekt á íslensku: Fyrirætlun NATO að staðsetja herstöðvar í Saragossa (á Spáni) og á Kanaríeyjunum og leiðtogafundur varnarmálaráðherra NATO sem var haldinn í Sevillu 8.-9. febrúar s.l. endurlífguðu andstöðuna við NATO á Spáni. Spánverjar vilja ekki vera samábyrgir stríðunum sem NATO undirbýr. Í áskorun sem 15 stjórnmálaflokkar og samtök á Spáni hafa birt segir m.a.: [...]
Palindrome að kvöldi 30. mars
Staðfest hefur verið að hljómsveitin Palindrome mun spila fyrir gesti að kvöldi 30. mars að loknu borðhaldi og ljóðadagskrá. Hljómsveitina skipa þeir Guðjón Heiðar Valgarðsson og Dagbjartur Elís Ingvarsson, en ekki er loku fyrir það skotið að þriðji tónlistarmaðurinn sláist í hópinn um kvöldið. Tónlist Palindrome er ljúf og áheyrileg. Hægt er að kynna sér [...]
Friðarhús í útláni
Einkasamkvæmi í Friðarhúsi Deila á Facebook
Miðjarðarhafsmatseðill á 30. mars
30. mars er mikilvæg dagsetning í baráttusögu íslenskra friðarsinna, en á þeim degi samþykkti Alþingi inngöngu Íslands í Atlantshafsbandalagið. Að venju minnast SHA 30. mars og halda á lofti kröfu sinni um að Ísland standi utan allra hernaðarbandalaga. Fjáröflunarmálsverður Friðarhúss verður að þessu sinni haldinn að kvöldi föstudagsins 30. mars. Guðrún Bóasdóttir (Systa) eldar Miðjarðarhafsmat: [...]
Friðarhús í útláni
Einkasamkvæmi í Friðarhúsi Deila á Facebook
Íslendingar taka beinan þátt í stríðinu í Írak – og leggja til einn hermann
Í Morgunblaðinu 21. mars er frétt þess efnis að Herdís Sigurgrímsdóttir, 26 ára fjölmiðlamaður, sé á leið til starfa á vegum Íslensku friðargæslunnar í Bagdad. Þar mun hún starfa sem upplýsingafulltrúi NATO og bera titilinn major. Íslendingar hafa lagt til friðargæsluliða í stöðuna frá 2005 eins og lesa má á vef utanríkisráðuneytisins. NATO vinnur að [...]
Afnám hernáms
eftir Ólaf Hannibalsson Eftirfarandi grein Ólafs Hannibalssonar birtist í Fréttablaðinu 21. mars, sjá einnig vef Þjóðarhreyfingarinnar. Hvers vegna lét George Bush eldri staðar numið við landamæri Íraks eftir að hafa hrakið her Saddams Hússeins yfir landamærin í stað þess að fyrirskipa ameríska hernum að halda áfram til Bagdad og steypa harðstjóranum af stóli? Ein skýring, [...]
Velheppnaður fundur í Reykjavík gegn Íraksstríðinu – aðgerðir um allan heim
Baráttufundur gegn Íraksstríðinu í Austurbæ að kvöldi 19. mars tókst með ágætum. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Helgi Hjörvar fluttu kröftug ávörp, Bragi Ólafsson rithöfundur las kafla úr nýjustu skáldsögu sinni, Sendiherranum, með áhrifamiklum inngangsorðum og Ólöf Arnalds og Wilhelm Anton Jónsson heilluðu fundarmenn með tónlist sinni. Samkomunni lauk með tilþrifamikilli endurkomu XXX Rottweilerhunda sem hafa [...]
Bætt aðgengi að Friðarvefnum
Sífellt er unnið að endurbótum á Friðarvefnum, í því skyni að gera hann aðgengilegri fyrir lesendur. Rétt er að vekja athygli á nýjum tæknilegum valkosti. Yfir atburðadagatalinu hér til vinstri gefur að líta mynd af litlum bláum karli. Sé þrýst á þessa mynd, breytist útlit síðunnar og við tekur viðmót sem auðveldar sjónskertum að lesa [...]
Fyrirlestur Elíasar Davíðssonar á Akureyri
Norðurlandsdeild SHA stóð fyrir fundi á Akureyri laugardaginn 17. mars í tilefni af 4 ára afmæli Íraksstríðsins. Efni fundarins var fyrirlestur Elíasar Davíðssonar: „Er hryðjuverkaógnin raunveruleg?“ Um 20 manns hlýddi á Elías. Hann talar blaðalaust kringum punkta sem hann varpar á vegg auk þess sem hann sýndi eina stutta heimildakvikmynd. Nokkur atriði í máli hans [...]
- SHA og MFÍK funda um þjóðernisöfgastefnur 5. október 2011
- Fjárlagafrumvarpið: 1,6 milljarður í hernaðarmál 18. desember 2008
- Ný miðnefnd SHA 16. nóvember 2008
- Ný miðnefnd SHA 6. nóvember 2005
- Fundað um fjármál 29. október 2005
- Fjáröflunarmálsverður maímánaðar 21. maí 2012
- Afmælisdagskráin 16. maí 13. maí 2012
- 40 ár fyrir friði 10. maí 2012
- Félagsfundur MFÍK: fréttir af Brasilíuförum 8. maí 2012
- 1. maí kaffi SHA 29. apríl 2012