Elías Davíðsson, 30. júlí 2006 Sunnudaginn, 23. júlí 2006, birti Morgunblaðið „Reykjavíkurbréf“ sem þandi sig yfir 2/3 úr blaðaopnu og var ekki undirritað. Huldumanninum sem samdi Bréfið gekk það fyrst og fremst til að dásama baráttu dómsmálaráðherra, Björns Bjarnasonar, fyrir auknum lögregluvöldum, þ.m.t. stofnsetningu greiningar- og þjóðaröryggisdeilda, til að stemma stigu við meintum alþjóðaglæpum(1) og [...]
Hve margir voru á fundinum við bandaríska sendiráðið?
Í dálkinum „Frá degi til dags“ í Fréttablaðinu 30. júlí veltir blaðamaður fyrir sér fjölda fundarmanna á mótmælafundi vegna árásanna á Líbanon sem var haldinn við sendirráð Bandaríkjanna 28. júlí. Hann undrast að lögreglan hefur slegið á töluna fimm til sexhundruð manns þar sem samkvæmt myndum í frétt NFS hafi í mesta lagi verið eitt [...]
Hvað er ályktun 377?
Bent hefur verið á þann möguleika að kalla saman Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna vegna stríðsins í Líbanon þar eð Öryggisráðið er gagnslaust vegna afstöðu Bandaríkjanna. Þá er vísað til ályktunar 377. Það voru Bandaríkin sem stóðu fyrir því að Allsherjarþingið samþykkti þessa ályktun haustið 1950. Þá um sumarið hófst Kóreustríðið. Rússar beittu þá neitunarvaldi í Öryggisráðinu [...]
Rússar hætta við flotaæfingar við Ísland
Ekki verður annað séð af neðangreindri frétt Fréttablaðsins í dag en ályktanir og aðgerðir SHA hafi eitthvað að segja, en samtökin sendu frá sér ályktun 27. júní vegna fyrirhugaðra flotaæfinga Rússa sem nú hafa verið slegnar af. Rússneski herinn mun ekki halda neinar flotaæfingar nærri Íslandi nú eða síðar á þessu ári, að sögn Victors [...]
Velheppnuð mótmælastaða við bandaríska sendiráðið
Um fjögur hundruð manns komu saman fyrir framan sendiráð Bandaríkjanna kl. 17:30 í dag. Ögmundur Jónasson þingmaður flutti ávarp en fundarmenn báru spjöld og hrópu slagorð þar sem krafist var friðar í Líbanon, að Bandaríkin og Ísrael hætti að drepa og lýstu vanþóknun sinni á „morðingjum heimsins og myrkraverkaher“. Samtök herstöðvaandstæðinga stóðu fyrir fundinum, sem [...]
Utanríkisráðherra vill vopnahlé í Libanon
Við vorum þungorð í garð Valgerðar Sverrisdóttur utanríkisráðherra hér á Friðarvefnum fyrr í dag. Það var okkur því meiri ánægja þegar við fréttum af því um miðjan dag að hún hefði sent utanríkisráðherra Ísraels bréf þar sem hún lýsti yfir áhyggjum vegna ástandsins og þeirri skoðun að vopnahlé verði komið á tafarlaust og frekari eyðileggingu [...]
Vinstri græn fara fram á fund í utanríkisnefnd
Þingflokkur VG hefur sent frá sér ályktun vegna árása Ísraels á Líbanon og farið fram á fund í utanríkismálanefnd vegna ástandsins. Ályktun frá þingflokki Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs skorar á íslensk stjórnvöld að gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að stöðva frekari manndráp og eyðileggingu í Líbanon. Alþjóðasamfélagið verður [...]
Mótmælastaða við sendiráð BNA
Stríðsrekstri Ísraela í Líbanon mótmælt við sendiráð Bandaríkjanna, sem styðja hernaðinn með ráðum og dáð. Deila á Facebook
Mótmælastaða við bandaríska sendiráðið í dag, föstudag, kl. 17:30 – Fjölmennum!
Samtök herstöðvaandstæðinga hafa boðað til mótmælastöðu við bandaríska sendiráðið í dag, föstudaginn 28. júlí, kl. 17:30 Friðarhúsið er opið frá kl. 15 dag. Sjá fleiri myndir hér (varúð – ekki fyrir viðkvæma). Nú er staðfest að 425 séu látnir í Líbanon, nær eingöngu almennir borgarar, þ.á.m. fjölmörg börn. Raunverulegur fjöldi er þó örugglega miklu meiri. [...]
Ritstjórnarfundur Dagfara
Ritstjórn Dagfara, tímarits SHA fundar í Friðarhúsi. Deila á Facebook
- SHA og MFÍK funda um þjóðernisöfgastefnur 5. október 2011
- Fjárlagafrumvarpið: 1,6 milljarður í hernaðarmál 18. desember 2008
- Ný miðnefnd SHA 16. nóvember 2008
- Ný miðnefnd SHA 6. nóvember 2005
- Fundað um fjármál 29. október 2005
- Fjáröflunarmálsverður maímánaðar 21. maí 2012
- Afmælisdagskráin 16. maí 13. maí 2012
- 40 ár fyrir friði 10. maí 2012
- Félagsfundur MFÍK: fréttir af Brasilíuförum 8. maí 2012
- 1. maí kaffi SHA 29. apríl 2012