Archive | júní, 2006

Leikar æsast á HM

Nú hefur verið sett upp stærra og betra sýningartjald í Friðarhúsi og eru því aðstæður til fótboltaáhorfs orðnar enn betri en áður. Allir leikir sem eftir eru á HM verða sýndir í Friðarhúsi fyrir boltaþyrsta friðarsinna. 16-liða úrslitum lýkur þriðjudaginn 27. júní með tveimur leikjum en fjórðungsúrslit verða leikin föstudag og laugardag. Allir velkomnir.   [...]

Read full story Comments are closed

Meirihluti þjóðarinnar vill uppsögn herstöðvasamningsins

Samkvæmt nýrri skoðankönnun Gallup er meirihluti þjóðarinnar hlynntur uppsögn herstöðvasamningsins. Skv. könnuninni eru 53,9 mjög eða frekar hlynnt uppsögn samningsins en aðeins 24,8% mjög eða frekar andvíg. 21,3% sagði hvorki né. Munurinn er þó meira afgerandi ef betur er rýnt í tölurnar, því að 33,2% eru mjög hlynnt uppsögninni en aðeins 9,4% mjög mótfallin: Mjög [...]

Read full story Comments are closed

Halldór Ásgrímsson, Írak, Diego Garcia og Keflavík

Írak Í Speglinum, fréttaskýringaþætti Ríkisútvarpsins, í dag 15. ágúst, var viðtal við Halldór Ásgrímsson. Hann var spurður um afstöðuna til Íraksstríðsins og sagði að rétt hafi verið að styðja innrásina á sínum tíma. „Hinsvegar fengum við rangar upplýsingar, það liggur fyrir, þannig að það má vel vera að við hefðum tekið aðra ákvörðun ef við [...]

Read full story Comments are closed

Stóráfanga fagnað

Langþráður draumur herstöðvaandstæðinga rætist í þessari viku, þegar endanlega verður gengið frá kaupum á Friðarhúsinu. Það gerist við undirritun afsals í tengslum við lokagreiðslu útborgunar á húsnæðinu að Njálsgötu 87. Stjórn Friðarhúss SHA hefur lagt á sig ómælda vinnu við söfnun hlutafjár til að tryggja að þessi áfangi næðist, en með því er Friðarhús laust [...]

Read full story Comments are closed

Sjálfvígsárásir alvarlegasta ógnin?

Bréf til Fréttastofu RÚV Í frétt, sem birtist á vefsíðu RÚV í dag (13. júní 2006), er greint frá því að samkvæmt mati „bandarískra sérfræðinga í erlendum málefnum og hryðjuverkum“ eru sjálfsvígssprengingar „alvarlegasta ógnin við Bandaríkin en hvorki efnavopn, sýklavopn né kjarnavopn.“ Ef látið er liggja milli hluta hver hafi framið árásirnar 11. september 2001, [...]

Read full story Comments are closed

Yfirlýsing CND um kjarnorkuáætlun Írana

Bresku friðarsamtökin Campaign for Nuclear Disarmament (CND) sendu frá sér yfirlýsingu 10. apríl síðastliðinn varðandi kjarnorkudeiluna við Íran. Þar hvetja samtökin alþjóðasamfélagið til að beita sér gegn því að Bandaríkin geri innrás í Íran og sér í lagi beina þau orðum sínum til bresku ríkisstjórnarinnar. Það er ástæða til að hvetja ríkisstjórn Íslands til að [...]

Read full story Comments are closed

Friðargæsla

Hugtakið „pacification“ (sjá skilgreiningu að neðan) var einu sinni notað af Bandaríkjamönnum til að snyrta sýn ofbeldisverka sinna í Suðaustur-Asíu. Eftir því sem menn áttuðu sig betur á inntaki orðsins minnkaði áróðursgildi þess. Leitað var að nýjum hugtökum. Nú nota árásaraðilar víðsvegar hugtökin „peace operations“, „peace maintenance“ og fleiri friðartengd orð til að lýsa hernaðaraðgerðum [...]

Read full story Comments are closed

Kanaútvarpið hættir

Kanaútvarpinu, útvarpsstöð bandaríska hersins á Keflavíkurflugvelli, var lokað 1. júní síðastliðinn eftir 55 ára starfsemi. Þessi starfsemi var löngum umdeild, ekki síst sjónvarpsútsendingarnar sem hófust árið 1960 og margir á suðvesturhorninu nýttu sér, einkum áður en Ríkisútvarpið hóf sjónvarpsútsendingar árið 1966. Áhrifa þessarar útvarpsstöðvar gætti þó líklega fyrst og fremst á sviði dægurtónlistar eins og [...]

Read full story Comments are closed

Vígvæðing NATO: Bandaríkjamenn koma gagneldflaugum fyrir í Póllandi og Tékklandi

Í grein í New York Times 22. maí var sagt frá því að Bandaríkjastjórn áætli að vera búin að koma upp 10 gagneldflaugum í Evrópu árið 2011. Meðal þeirra landa sem helst er litið til eru Pólland og Tékkland, sem gerðust aðilar að NATO árið 1999. Pentagon hefur beðið þingið um 56 milljónir dala til [...]

Read full story Comments are closed

Haditha: My Lai Íraks?

Fréttir af fjöldamorðum bandarískra hermanna í bænum Haditha í Írak 19. nóvember í fyrra hafa vakið mikla athygli. Þessi atburður hefur leitt huga margra að árásinni á Fallujah í nóvember 2004 en einnig rifjast nú upp fyrir mörgum fjöldamorðin í bænum Song My í Víetnam 16. mars 1968. Í þessum bæ, sem er reyndar þekktari [...]

Read full story Comments are closed