Friðargangan á Akureyri leggur af stað Menntaskólanum klukkan 20. Göngunni lýkur með fundi þar sem Margrét Heinreksdóttir lögfræðingur flytur ávarp og kór Akureyrarkirkju syngur. Deila á Facebook
Friðarganga á Ísafirði
Friðarganga verður að venju á Ísafirði á Þorláksmessu. Gangan hefst kl. 18, líkt og í Reykjavík en safnast verður saman við Ísafjarðarkirkju klukkan 17:45. Þaðan verður haldið niður á Silfurtorg þar sem verður stutt dagskrá, sem samanstendur af tónlist, ljóðalestri og friðarhugleiðingum. Ræðumaður dagsins verður Hörður Högnason hjúkrunarforstjóri og formaður Rauðakrossdeildar Ísafjarðar. Friðarkerti verða til [...]
Jólagjöf friðarsinnans
Friðarsinnar eru upp til hópa nægjusamt fólk sem ekki gengur svo glatt græðginni og lífsgæðakapphlaupinu á vald. Þetta er að flestu leyti góður eiginleiki, nema þegar kemur að því að kaupa gjafir handa þessu fólki. Hvað gefur maður eiginlega fólki sem á allt eða þykist í það minnsta ekki skorta neitt? Lausnin er fundin. Hlutabréf [...]
Friðargöngur á Þorláksmessu
Efnt verður til þriggja friðarganga á Þorláksmessu í ár, í Reykjavík, á Ísafirði og á Akureyri. Enn hafa ekki borist upplýsingar um tilhögun göngunnar fyrir vestan, en um leið og þær berast verður dagskráin kynnt á þessum vettvangi. Í Reykjavík verður að vanda lagt af stað kl. 18 frá Hlemmi. Friðarsinnar eru hvattir til að [...]
Fjölmenni á málsverði
Frábær mæting var á fjáröflunarmálsverð Friðarhúss á föstudagskvöld, en um fimmtíu manns mættu og gæddu sér á veitingunum. Stemningin var sömuleiðis eins og best verður á kosið og fóru meðal annars fram miklar og góðar umræður um mótmæli og mótmælamenningu undir stjórn Hrundar Ólafsdóttur. Guðrún Bóasdóttir átti veg og vanda að eldamennskunni, en hún tók [...]
Fjáröflunarmálsverður í Friðarhúsi
Fjáröflunarmálsverður til styrktar Friðarhúsi verður haldinn að kvöldi föstudagsins 16. desember og hefst kl. 19. Húsið verður opnað hálftíma fyrr. Yfirkokkur að þessu sinni verður Guðrún Bóasdóttir, en máltíðin kostar litlar 1.000 krónur. Léttar veitingar á vægu verði. Deila á Facebook
Undirbúningur Þorláksmessugöngu
Samstarfshópur friðarhreyfinga fundar í Friðarhúsi um undirbúning friðargöngu á Þorláksmessu. Fundurinn hefst kl. 20 og er öllum opinn. Deila á Facebook
Friðarpípan – spurningakeppni SHA
Friðarpípan, reyklaus spurningakeppni, verður haldin laugardaginn 17. desember í Friðarhúsi. Keppt verður eftir hefðbundnu pöbb-kviss fyrirkomulagi (í tveggja manna liðum) og hefjast leikar kl. 16 og stendur gamanið framundir kvöldmat. Aðalspurningakeppnin (30 spurningar, almenns eðlis) verður í umsjón Kolbeins Óttarssonar Proppé, en einnig verður boðið upp á tvær styttri keppnir. Steindór Jónsson sér um spurningakeppni [...]
Krásir
Föstudagskvöldið 16. desember verður efnt til fjáröflunarmálsverðar í Friðarhúsi, þar sem friðarsinnar geta kýlt vömbina fyrir aðeins 1000 krónur. Yfirkokkur verður Guðrún Bóasdóttir (Systa) og vita þá matgæðingar að von er á góðu. Borðhald hefst kl. 19, en húsið verður opnað hálftíma fyrr. Meðan á veislunni stendur mun Birgitta Jónsdóttir skáldkona lesa úr nýútkominni bók [...]
Áhrifamikil ræða Nóbelsverðlaunahafans Harold Pinter
Það var friðasinnnum sérstakt ánægjuefni að Nóbelsverðlaunin voru þetta árið veitt breska leikritaskáldinu Harold Pinter. Harold Pinter hefur auðvitað löngu sannað sig sem eitt ágætasta leikritaskáld síðustu aldar, en þar fyrir utan hefur hann verið óþreytandi baráttumaður fyrir friði og réttlæti og hefur tekið virkan þátt í andófinu gegn innrásinni í Írak og hernáminu. Ræða, [...]
- SHA og MFÍK funda um þjóðernisöfgastefnur 5. október 2011
- Fjárlagafrumvarpið: 1,6 milljarður í hernaðarmál 18. desember 2008
- Ný miðnefnd SHA 16. nóvember 2008
- Ný miðnefnd SHA 6. nóvember 2005
- Fundað um fjármál 29. október 2005
- Afmælisdagskráin 16. maí 13. maí 2012
- 40 ár fyrir friði 10. maí 2012
- Félagsfundur MFÍK: fréttir af Brasilíuförum 8. maí 2012
- 1. maí kaffi SHA 29. apríl 2012
- Málsverður aprílmánaðar 24. apríl 2012