Archive | nóvember, 2005

Skiltamálun í Friðarhúsi

Herstöðvaandstæðingar taka til í skiltageymslunni, mála ný kröfuspjöld en endurnýja önnur. Hefst kl. 20 og eru allir velkomnir.   Deila á Facebook

Read full story Comments are closed

Skiltamálun í Friðarhúsi

Það er markmið margra í lífinu að skrá hitt og þetta á spjöld sögunnar. Á fimmtudagskvöldið gefst friðarsinnum kostur á að skrá – og jafnvel mála líka – á spjöld SHA (sem eru síst ómerkilegri spjöld). Þá verður sem sagt lager SHA af gömlum mótmælaskiltum og -spjöldum tekinn í gegn, sumum skipt út en lappað [...]

Read full story Comments are closed

Elsta íslenska friðarhreyfingin

Það er fátítt að íslensk félagasamtök geti talið starfstíma sinn í áratugum, einkum þegar um er að ræða félög á sviði stjórnmála- eða þjóðmálabaráttu. Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvenna, MFÍK, eru í þessum hópi. Samtökin voru stofnuð fyrir meira en hálfri öld, nánar tiltekið árið 1951, en áhugavert yfirlit um sögu þeirra birtist í tímaritinu [...]

Read full story Comments are closed

Spurningakeppni friðarsinnans

SHA kynnir til sögunnar nýjung í félagsstarfi sínu. Spurningakeppni á laugardagseftirmiðdegi, þar sem gestir og gangandi geta spreytt sig í skemmtilegri spurningakeppni. Fyrirmyndin er svokallað „pub-quiz“ breskra öldurhúsa. Skemmtilegar spurningar og léttar veitingar á vægu verði. Látið ykkur ekki missa á spurningakeppni friðarsinnan frá kl. 16-18.   Deila á Facebook

Read full story Comments are closed

Fjáröflunarkvöldverður Friðarhúss

Í hverjum mánuði er efnt til fjáröflunarmálsverðar í Friðarhúsi til að standa undir rekstri og stofnkostnaði húsnæðisins. Boðið verður upp á góðan mat á kostakjörum, 1.000 kr. skammturinn og léttar veitingar á vægu verði. Föstudagskvöldið 25. nóvember verður boðið upp á heita og kalda sjávarrétti fyrir gesti og gangandi. Húsið opnar kl. 19. Allir velkomnir. [...]

Read full story Comments are closed

Ljóðakryddað sjávarfang

Fjáröflunarmálsverður Friðarhúss verður haldinn föstudagskvöldið 25. nóvember, eins og áður hefur verið kynnt á þessum vettvangi. Þar verður boðið upp á kalda og heita sjávarrétti fyrir einungis 1.000 krónur. Byrjað verður að framreiða matinn kl. 19, en húsið verður opnað hálftíma fyrr. Meðan á borðhaldi stendur geta friðarsinnar hlustað á félaga í Nýhil-hópnum flytja ljóð. [...]

Read full story Comments are closed

Friðarhús í útláni

Friðarhús er í útláni í dag, miðvikudag.   Deila á Facebook

Read full story Comments are closed

Takið frá helgina!

Það verður margt á seyði í Friðarhúsi um næstu helgi og því fyllsta ástæða fyrir friðarsinna að taka hana frá. Á föstudagskvöld verður blásið til fjáröflunarmálsverðar til styrktar reksturs og kaupa á Friðarhúsi. Sjálfboðaliðar úr röðum félagsmanna SHA bjóða þar upp á ljúffengan kvöldverð fyrir aðeins 1.000 krónur, en einnig verður hægt að fá léttar [...]

Read full story Comments are closed

Milan Rai í fangelsi

Friðar- og umhverfisverndarsinninn Milan Rai heimsótti Ísland sumarið 2004 í boði Samtaka herstöðvaandstæðinga, flutti erindi um Íraksstríðið og stóð fyrir eftirminnilegum námskeiðum í borgaralegri óhlýðni. Nú berast þær fréttir að Milan Rai hafi byrjað afplánun 28 daga fangelsisdóms, fyrir að neita af samviskuástæðum að greiða rúmlega 2.000 punda skaðabætur til breska utanríkisráðuneytisins vegna slagorða gegn [...]

Read full story Comments are closed

Góðar gjafir

Hinu nýja húsnæði SHA, Friðarhúsi á horni Njálsgötu og Snorrabrautar, berast sífellt nýjar gjafir. Nú síðast bættust við búslóðina uppþvottavél, ísskápur og hillusamstæða – en allir þessir hlutir munu koma að góðu gagni. Sem fyrr er lýst eftir sjónvarpstæki og vídeótæki til sýningar á hvers kyns heimildarmyndum og fræðsluefni. Þá er ljóst að samtökin þurfa [...]

Read full story Comments are closed