Archive | október, 2005

Vinnufundur í Friðarhúsi

Fimmtudagskvöldið 3. nóvember verður að venju opið hús í Friðarhúsi, á horni Njálsgötu og Snorrabrautar. Að þessu sinni verður unnið að því að fullbúa húsnæðið fyrir landsráðstefnu SHA sem verður haldin 5. nóvember. Húsið opnar kl. 20:00. Allir velkomnir. Kaffi á boðstólum og léttar veitingar á vægu verði.   Deila á Facebook

Read full story Comments are closed

Opinn miðnefndarfundur SHA

Friðarsinnar eru nú farnir að geta gengið að því vísu að haldnir séu fundir í Friðarhúsi, á horni Njálsgötu og Snorrabrautar, á hverju fimmtudagskvöldi. Fimmtudagurinn 27. október verður þar engin undantekning, því kl. 20 verður þar opinn fundur miðnefndar SHA um undirbúning landsráðstefnu SHA, sem haldin verður 5. nóvember nk. Hvað þarf að gera til [...]

Read full story Comments are closed

Fimmtudagsfundur um stefnuskrá

Stefnuskrá Samtaka herstöðvaandstæðinga var samþykkt á landsráðstefnu síðla árs 1995. Stefnt er að því að ræða stefnuskránna á aðalfundi SHA laugardaginn 5. nóvember næstkomandi og er undirbúningsvinna þegar hafin. Fimmtudagskvöldið 20. október kl. 20 verður boðað til fundar í Friðarhúsi, nýjum húsakynnum SHA á horni Snorrabrautar og Njálsgötu. Þar verður dreift drögum að nýrri stefnuskrá [...]

Read full story Comments are closed

Fundað um fjármál

Hið nýja húsnæði SHA, Friðarhúsið á horni Snorrabrautar og Njálsgötu, er óðum að taka á sig mynd. Fjöldi sjálfboðaliða hefur unnið að standsetningu húsnæðisins síðustu vikur, en til að standa undir slíkum rekstri er ekki nægilegt að hafa vaskar hendur. Fjármuna er þörf til að standa undir rekstri og afborgunum. Fimmtudagskvöldið 13. okt. kl. 20 [...]

Read full story Comments are closed

Kvennabarátta fyrir jafnrétti, jöfnuði og betra mannlífi

Þessi grein Maríu S. Gunnarsdóttur, formanns MFÍK, birtist í Morgunblaðinu mánudaginn 24. okt. 2005. BARÁTTA og afmælishald fara illa saman. Barátta horfir fram á veg og er orka sem nýta má til breytinga. Afmæli eru hins vegar tímamót, sem kalla alltaf á einhvers konar uppgjör. Og þau eru mörg afmælin á þessu ári: 60 ár [...]

Read full story Comments are closed

Ályktun frá félagsfundi SHA

Almennur félagsfundur Samtaka herstöðvaandstæðinga, haldinn fimmtudaginn 20. október, hvetur til þess að slitið verði á öll tengsl milli alþjóðaflugvallar Íslendinga í Keflavík og veru erlends setuliðs á Miðnesheiði. Íslendingar hafa fulla burði til þess að reka flugvöll án styrkja frá erlendu herveldi. Fundurinn bendir á að einfaldasta og besta lausnin á þessu milliríkjadeilumáli íslenskra og [...]

Read full story Comments are closed

Friðarhorfur í Búrúndí

Það virðist vera hægt að lesa um endalaust af hörmungum í fjölmiðlum heimsins. Þjóðarmorð hér og borgarastríð þar. Heimurinn lokar gjarnan augum fyrir þessu, enda sjaldnast einhver skemmtilesning á ferð. En þá fyrst þegar friður kemst á þá gleymir heimsbyggðin aljgörlega því landi sem hafði verið stríðshrjáð. Styrkir hætta að berast eða berast seint og [...]

Read full story Comments are closed