60 ár verða senn liðin frá kjarnorkuárásunum á Hiroshima og Nagasaki. Afmæli þessara hræðilegu sprenginga, sem margir telja versta stríðsglæp sögunnar, hefur orðið tilefni til upprifjunar á þessum atburðum víða um lönd. Í nýlegu tölublaði hins vita tímarits New Scientist, birta tveir nafnkunnir sagnfræðingar Mark Selden og Peter Kuznick grein um árásirnar, þar sem þeir [...]
Enn er unnið að stofnun Friðarhúss
Á síðustu landsráðstefnum SHA hafa verið samþykktar ályktanir þess efnis að unnið skuli að því að samtökin komist í húsnæði fyrir rekstur skrifstofu, varðveislu gripa og almennt friðarstarf. Á fundum þessum hefur sú skoðun verið nokkuð almenn að húsnæðisleysið standi starfsemi félagsins fyrir þrifum. Friðarhús á góðum stað í miðborg Reykjavíkur er forsenda þess að [...]
SHA andæfa herskipaheimsókn
Það ætti ekki að hafa farið fram hjá fréttaáhorfendum að rússnesk herskip halda til í Reykjavíkurhöfn. Fréttaflutningur af heimsókninni hefur einkum snúist um fáránleg aukaatriði á borð við það hversu mörgum skotum hafi verið hleypt af fallstykkjum skipanna til „heiðurs“ einstökum íslenskum stjórnmálamönnum. Fulltrúar frá SHA mættu í dag, þriðjudag, að rússnesku skipunum á þeim [...]
Ályktun vegna kom rússneskra herskipa til Reykjavíkur
Samtök herstöðvaandstæðinga mótmæla komu rússnesku herskipanna Levtsjenkó aðmíráls og Vjazma til Reykjavíkur og árétta að slík herskip eigi ekki erindi í Reykjavíkurhöfn. Það er óskiljanlegt að Reykjavíkurborg skuli ítrekað hleypa slíkum drápstólum að bryggju. Einnig mótmælir SHA fallbyssuskothríð rússnesku skipanna sem að sögn var gerð í “virðingarskyni við Ísland”. Við viljum árétta að slíkar seremóníur [...]
„Stríðið gegn hryðjuverkum“ kallar á hryðjuverk
Hryðjuverkin í Lundúnum í morgun, þann 7. júlí 2005, eru óafsakanleg. Slíkan verknað, sem bitnar á óbreyttum borgurum, er ekki hægt að réttlæta. Sem eðlilegt er fylltumst við óhug þegar fréttirnar bárust frá Lundúnum í morgun. Þegar þetta er skrifað síðla dags má lesa í vefútgáfum fjölmiðlanna að 33 manns séu látnir og hátt í [...]
- SHA og MFÍK funda um þjóðernisöfgastefnur 5. október 2011
- Fjárlagafrumvarpið: 1,6 milljarður í hernaðarmál 18. desember 2008
- Ný miðnefnd SHA 16. nóvember 2008
- Ný miðnefnd SHA 6. nóvember 2005
- Fundað um fjármál 29. október 2005
- Afmælisdagskráin 16. maí 13. maí 2012
- 40 ár fyrir friði 10. maí 2012
- Félagsfundur MFÍK: fréttir af Brasilíuförum 8. maí 2012
- 1. maí kaffi SHA 29. apríl 2012
- Málsverður aprílmánaðar 24. apríl 2012